Skuldatryggingaálag bankanna hækkar á ný 9. júní 2008 11:33
Skuldatryggingaálag bankanna stígur nú á ný eftir að hafa lækkað hratt undanfarna mánuði. Fram kemur í Morgunkorni Glitnis að skuldatryggingaálagið hafi náð sögulegum hæðum í mars þegar álag Kaupþings og Glitnis komst yfir 1.000 punkta og skuldatryggingaálag Landsbankans fór upp í 800 punkta. Var hækkunin rakin til árása vogunarsjóða á íslenska hagkerfið sem Fjármálaeftirlitið hefur nú til athugunar. Skuldatryggingaálagið tók svo að lækka í kjölfarið og var í kringum 440 punkta hjá Kaupþingi í maí, um 400 punkta hjá Glitni í kringum 230 punkta hjá Landsbankanum. Í síðustu viku tók álagið hins vegar að stíga á ný og stendur skuldatryggingaálag Kaupþings nú í 525 punktum, álag Glitnis er í 500 punktum og Landsbankans í 285 punktum. „Íslensku bankarnir eru þó langt frá því að vera einir um þessa þróun því að Itraxx vísitalan sem mælir þróun skuldatryggingaálags stærri fyrirtækja í Evrópu hækkaði einnig í síðustu viku. Vísitalan stendur nú í 80 punktum en var í 60 punktum í byrjun maí. Þessi þróun er vísbending um að áhættufælni á heimsvísu sé að aukast á ný. Hækkandi olíuverð og vaxandi ótti þess efnis að tímabil langvarandi stöðnunar sé framundan í bandarísku efnahagslífi er talið eiga stóran þátt í þeirri þróun," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Viðskipti erlent Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Sjá meira