Hver er þessi olíutunna? Nanna Hlín Halldórsdóttir skrifar 12. júní 2008 15:36 Oft er erfitt að átta sig á umræðunni um olíu á heimsvísu þó maður skilji vel hvað bensín kostar.
Um þessar mundir er mikið talað um eldsneytisverð í kjölfar mikilla hækkanna á heimsvísu. Þá er gjarnan talað um hversu mikið olíutunnan hefur hækkað í dollurum talið. En tunnur geta verið af mörgu tagi og því ekki gefið að vita um hvað er verið að tala þegar um olíutunnu er að ræða. Magnús Ásgeirsson hjá N1 ljóstraði upp leyndardómum olíutunnunnar fyrir fréttamanni Vísis í dag. Hver olíutunna tekur 158 lítra en í smurolíutunnu sem margir þekkja eru um 205 lítrar. Verð á olíutunnu á heimsmarkaði í dag er á bilinu 130-140 lítrar. Innihald olíutunnu er ekki bensín, það eldsneyti sem almenningur þekkir hvað best, heldur hráolía. Úr hráolíu er hægt að vinna margs konar eldsneyti en það er gert í olíuhreinsistöðvum þar sem efnin eru greind í sundur. Þá verða til eldsneyti á borð við bensín eða gas sem notað er til þess að grilla. Hráolían hefur sína eðlisþyngd sem og afurðir hennar hver fyrir sig sem gerir það að verkum að mismunandi margir lítrar eru í hverju tonni af olíuafurðum. Það eru til fjöldinn allur af tegundum af hráolíu í heiminum og því er efnasamsetning ekki ávallt sú samt þegar talað er um hráolíu. Í hinni dæmigerðu olíutunnu er um 51% bensín en restin er önnur eldsneyti á borð við þotueldsneyti, gas eða smurolía. Þótt talað sé um olíutunnu þegar rætt er um verð á eldsneyti þá er hráolían ekki geymd í tunnum heldur er um mælieiningu að ræða. Olíufélögin á Íslandi kaupa ekki hráolíu beint heldur kaupa þau bensín eða önnur eldsneyti sem búið er að vinna í olíuhreinsistöðvum.
Mest lesið Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fá að kaupa Pei og Motus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Sjá meira