Viðskipti innlent

Viðskiptavinir TM fá leiðréttingu á eigin áhættu

Í framhaldi af þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að lækka lágmark eigin áhættu í tjónum sem Viðlagatrygging Íslands bætir úr 85.000 kr. í 20.000 í kjölfar Suðurlandsskjálftans vill Tryggingamiðstöðin koma eftirfarandi á framfæri.

Þeir fjölmörgu viðskiptavinir sem TM hefur þegar gert upp við munu sjálfkrafa fá leiðréttingu í samræmi við þessa ákvörðun án þess að þurfa að hafa samband við TM. Félagið hefur þegar hafið vinnu við að undirbúa þessar viðbótargreiðslur.

„Við höfum þegar hafið vinnu við leiðréttingu á greiðslum til þeirra viðskiptavina okkar sem við höfðum gert upp lausafjártjón við. Við eigum von á að sú vinna geti gengið mjög hratt og að greiðsla berist á allra næstu dögum," segir Kjartan Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri tjónaþjónustu TM.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×