Viðskipti innlent

Tryggingarsjóður ber greiðsluskyldu vegna Edge

Fjármálaeftirlitið telur að Tryggingarsjóður innistæðueigenda beri greiðsluskyldu vegna Edge reikninga Kaupþings.

Í tilkynningu um málið á heimasíðu FME segir að „Þann 9. október 2008 var Kaupþing Edge vefsíða Kaupþings orðin óvirk. Það er álit Fjármálaeftirlitsins að sama dag hafi Kaupþing banki hf. ekki verið fær um að inna af hendi greiðslu á andvirði innstæðna tiltekinna reikninga, þeirra viðskiptavina sem þess kröfðust.

Samkvæmt lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta hefur vegna ofangreindra tilvika stofnast til greiðsluskyldu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta gagnvart viðskiptavinum Kaupþings sem ekki hafa fengið greiddar innstæður sínar, í samræmi við ákvæði laganna."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×