Samdráttur í smásöluverslun í júní 10. júlí 2008 14:04
Velta í dagvöruverslun minnkaði um 2,2% í júní síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi. Á breytilegu verðlagi jókst velta í dagvöruverslun hins vegar um 13,5% á milli ára. Verð á dagvöru hækkaði um 16,1% á einu ári, frá júní í fyrra til júní á þessu ári. Á milli mánaðanna maí og júní minnkaði velta dagvöruverslana um 3,4% á föstu verðlagi og um 2,6% á breytilegu verðlagi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Rannsóknarsetir verslunarinnar. þar segir ennfremur: „Sala áfengis var 9,6% minni í júní miðað við sama mánuð árið áður á föstu verðlagi og minnkaði um 3,7% á breytilegu verðlagi. Á milli mánaðanna maí og júní minnkaði velta áfengisverslunar um 8,1% á föstu verðlagi og á breytilegu verðlagi dróst veltan saman um 7,4%. Verð á áfengi var 6,5% hærra í júní síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra samkvæmt verðmælingu Hagstofu Íslands. Fataverslun minnkaði einnig á milli ára og var 7,7% minni í júní miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og 2,2% á breytilegu verðlagi. Á milli mánaðanna maí og júní minnkaði veltan um 5,1% á breytilegu verðlagi og um 5,7% á föstu verðlagi. Verð á fötum hækkaði um 6% á einu ári. Þá varð einnig samdráttur í skóverslun í júní miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi sem nam 1,9% en á breytilegu verðlagi jókst hins vegar veltan um 8% á milli ára. Skóverslun jókst á föstu verðlagi um 4,9% í júní sé miðað við mánuðinn á undan og um 7,3% á breytilegu verðlagi. Verð á skóm í júní hækkað um 10,1% frá því í júní í fyrra. Í júní minnkaði velta í húsgagnaverslun um 8,2% á föstu verðlagi miðað við mánuðinn á undan og um 10,4% á breytilegu verðlagi. Verð á húsgögnum hefur hækkað um 7,6% frá því um áramótin. Samanlögð velta í þeim flokkum smásöluverslunar sem mælingar Rannsóknaseturs verslunarinnar ná til minnkaði um 2,3% á milli júní á þessu ári og júní í fyrra á föstu verðlagi en jókst um 10,2% á breytilegu verðlagi. Samdráttur virðist hafa orðið í flestum tegunda verslunar í júní, sem er í samræmi við minnkandi kaupmátt ráðstöfunartekna. Samkvæmt mælingu Hagstofunnar var kaupmáttur launa 3,6% minni í maí síðastliðnum miðað við maí á síðasta ári. Verðhækkanir, aukinn vaxtakostnaður og almenn verðbólga veldur minnkandi einkaneyslu og samdrætti í verslun. Sem dæmi má nefna að verð á dagvöru hefur hækkað um 11,1% á síðustu sex mánuðum, eða frá áramótum. Ætla má að verðhækkanir á matvöru hafi áhrif á aðra tegund verslunar, því minna verður til ráðstöfunar í dýrari fjárfestingar. Hærra matarverð veldur því að neytendur spara við sig kaup á ýmissi dýrari sérvöru sem hægt er að fresta til betri tíma. Þá er almennt talið að þegar matvælaverð hækkar eins og nú er velji neytendur fremur ódýrari matvöru en þá dýrari. Fjölgun í komu erlendra ferðamanna til landsins í júní um 1,5% frá júní í fyrra og hagstæðara gengi krónunnar fyrir þá sem nota erlenda mynt ætti að leiða til meiri eyðslu þessara erlendu gesta í mat og drykk hér innanlands. Það virðist þó ekki nægja til að vega upp þann samdrátt sem varð í verslun í síðasta mánuði. Minna má á að samkvæmt samantekt Rannsóknaseturs verslunarinnar og Hagfræðistofnun HÍ eru horfur á að enginn vöxtur verði í dagvöruverslun það sem eftir er árs, sem er töluverð breyting frá því sem verið hefur undanfarin ár."
Mest lesið Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fá að kaupa Pei og Motus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sjá meira