Viðskipti innlent

FL Group selur eignarhluti í tveimur fasteignafélögum

Jón Sigurðsson er forstjóri FL Group.
Jón Sigurðsson er forstjóri FL Group. MYND/Anton

FL Group hefur selt alla hluti sín í tveimur íslenskum fasteignafélögum, Eikarhaldi og Fasteignafélagi Íslands.

Um er að ræða nærri 72 prósenta hlut í Eikarhaldi, móðurfélagi Eikar fasteignafélags, og 32 prósenta eignarhlut í Fasteignafélagi Íslands eftir því sem segir í tilkynningu FL Group.

Eikarhald, sem nú heitir Eik Properties ehf., er að mestu í eigu Saxbygg ehf. og Glitnis banka og á nú allt hlutafé í Eik fasteignafélagi og Fasteignafélagi Íslands auk annarra eigna. Salan hefur óveruleg áhrif á afkomu FL Group á öðrum ársfjórðungi 2008 eins og segir í tilkynningu félagsins.

 

 

„Eikarhald tilheyrði samstæðureikningi FL Group frá og með fyrsta ársfjórðungi 2008 sem eign í sölumeðferð. Sala eignarhluta FL Group í þessum fasteignafélögum er eitt af mörgum skrefum í áframhaldandi endurskipulagningu á eignasafni félagsins og í samræmi við fyrirliggjandi stefnumörkun um að fjárfestingar FL Group í fasteignum séu fyrst og fremst í gegnum kjölfestuhlut í Landic Property," segir enn fremur þar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×