Iceland Express breytir áætlunum í haust og vetur 27. júní 2008 16:15
Iceland Express hefur ákveðið að breyta haust- og vetraráætlun til að mæta auknum kostnaði vegna eldsneytisverðhækkana og veiku gengi krónunnar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu nú seinni partinn. Þar segir ennfremur: „Fyrirtækið mun taka í notkun Boeing 737-700 sem eru sparneytnari og umhverfisvænni vélar en áður hafa verið notaðar í áætlunarflugi til og frá landinu. Nýju vélarnar eyða til að mynda um 25% minna eldsneyti á hvern flugtíma en þær vélar sem félagið er nú með í notkun. Það sem af er ári hefur Iceland Express selt fleiri flugmiða en á sama tíma í fyrra og bókunarstaða félagsins er sú besta í sögu þess. Eldsneytisverð hefur hins vegar hækkað um meira en 100% á rúmu ári á sama tíma og krónan hefur veikst verulega. Því verður félagið að bæta nýtingarhlutfall vélanna. Helstu breytingarnar sem gerðar verða á áætlun félagsins eru þær að dregið verður úr sætaframboði í haust og vetur til Kaupmannahafnar og London. Ákveðið hefur verið að fresta fyrirhuguðu flugi um Gatwick flugvöll í London til vors 2009. Þá verður ekki boðið upp á heilsársflug til Alicante, auk þess sem felld verða niður einstök flug á aðra áfangastaði. Farþegar sem áttu bókað flug sem fellt verður niður verða látnir vita og samkvæmt reglum um breytingar á áætlun er þeim boðin endurgreiðsla eða önnur ferðatilhögun." Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express segir stöðu félagsins góða. „Við teljum að á þessari stundu sé það forgangsatriði að ná niður eldsneytiskostnaði eins og kostur er. Við höfum reynt eftir fremsta megni að halda farmiðaverði óbreyttu og eru þessar breytingar stór liður í því. Við finnum líka fyrir jákvæðum viðbrögðum viðskiptavina og erum ekki að upplifa sömu söluminnkun og aðrir. Við vonum að með þessum aðgerðum fáum við fljótlega byr í seglin aftur, en tímabundið verðum við þó að draga þau aðeins saman."
Mest lesið Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fá að kaupa Pei og Motus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Sjá meira