82 milljarðar í súginn hjá stjórnarmanni Exista 30. janúar 2008 08:00 Robert Tchenguiz hefur átt litlu láni að fagna á mörkuðum að undanförnu.
Robert Tchenguiz, stjórnarmaður í Exista, hefur átt erfitt uppdráttar að undanförnu. Breska blaðið The Guardian greindi frá því á dögunum að eignir hans og bróður hans Vincents í Englandi hefðu rýrnað um 72 milljarða frá því í byrjun nóvember á síðasta ári. Sé það ekki nóg þá hefur 5,09% hlutur hans í Exista rýrnað um 10 milljarða á sama tímabili. Guardian greindi frá því í síðustu viku að eignir Roberts og bróður hans Vincents í Englandi hefðu rýrnað um rúma 72 milljarða á síðustu þremur mánuðum eða frá byrjun nóvember á síðasta ári. Vegur þar þyngst afleitt gengi þeirra þriggja félaga sem bræðurnir hafa lagt mestan pening í. Er um að ræða kráarkeðjuna Mitchells & Butlers, matvöruverslunarkeðjuna Sainsbury´s og tölvuleikjaframleiðslufyrirtækið SCi. Gengi bréfa í Mitchells & Butlers hefur fallið um 40% frá í nóvember, gengi bréfa í Sainsbury´s um 33% og gengi í SCi um 83%. Og ekki hefur íslensk fjárfesting Tchenguiz gengið betur því rúmlega 5% hlutur hans í Exista hefur rýrnað um tæpa tíu milljarða síðan í byrjun nóvember. Gengi Exista hefur fallið um 55,6% á þessum tíma. Til að bæta gráu ofan á svart var tilkynnt í gær að Tchenguiz og breska kráarkeðjan Mitchells & Butlers, þyrftu að afskrifa 35 milljarða íslenskra króna vegna afleiðusamninga sem gerðir voru síðasta sumar.Tchenguiz, sem á 22% hlut í Mitchells & Butlers, og kráarkeðjan gerðu með sér samkomulag í júlí á síðasta ári sem fól í sér stofnun sameiginlegs fasteignafélags sem fasteignir Mitchells & Butlers. Í kjölfarið voru síðan gerðir tveir afleiðusamningar (sjá skýringu neðst í greininni*). Annar treysti á að verðbólgan myndi lækka en hinn á að vextir myndu hækka. Vegna lítils framboðs á lánsfé, verðbólguhækkunar og vaxtalækkunar hefur breska kráarkeðjan hins vegar tilkynnt að ekkert verði af hinu sameiginlega fasteignafélagi hennar og Tchenguiz. Og því ekkert annað í stöðunni en að loka afleiðusamningnum og afskrifa 35,3 milljarða vegna þeirra. Þrátt fyrir mótbyr undanfarinna mánaða greinir breska blaðið Evening Standard frá því að bræðurnir eigi þó enn til hnífs og skeiðar þar sem samanlagðir eignir þeirra séu metnar á 40 milljarða. Og Robert er ekki svo aðþrengdur að hann þurfi að selja lúxusnekkju sína sem liggur við festar í Mónakó. "Ég elska bátinn. Ég hef ekki í hyggju að selja hann. Ég hef tapað miklum peningum en er ekki í vandræðum," sagði Tchenguiz við blaðið þegar hann var spurður um fjárhagslega stöðu sína. *Þegar rætt er um afleiðusamninga er átt við samning þar sem uppgjörsákvæði byggja á þróun ákveðinna þátta á borð við vaxta, gengis gjaldmiðla, gengi bréfa í tilteknu hlutafélagi, þróun ákveðinnar vísitölu eða verðs á hrávörum. Eins og gefur að skilja byggir því virði slíks samnings á þróun þeirra undirliggjandi þátta sem um ræðir frá samningsdegi til uppgjörsdags. Dæmi um afleiður eru framvirkir samningar, valréttur (kaup- og söluréttur), vaxtaskiptasamningar og staðlaðir framvirkir samningar. (heimild: mp.is)
Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira