Neikvæðar horfur á hlutabréfamarkaði til áramóta 11. júlí 2008 10:42
Greining Glitnis telur horfurnar fyrir íslenskan hlutabréfamarkað neikvæðar til loka árs og sér ekki kauptækifæri í íslenskum hlutabréfum horft til skamms tíma. Afkomuspá greiningarinnar var birt í Morgunkorni hennar í dag. Þar segir að afkomuhorfur flestra félaga hafa versnað samfara því sem aðstæður hafa versnað á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Ársins 2008 verði minnst í sögubókum fyrir það ástand sem nú ríkir á fjármálamörkuðum. Erlend fjármögnun er lykillinn að viðsnúningi hlutabréfamarkaðarins. „Okkar mat er að Úrvalsvísitalan muni lækka fram til áramóta og standa í 4.000 stigum í lok árs. Við reiknum með nokkuð snörpum viðsnúningi á fyrri hluta næsta árs samhliða bættum aðstæðum á alþjóðlegum lánsfjármörkuðum og spáum að vísitalan standi í 4.900 stigum um mitt næsta ár. Horft til næstu tólf mánaða teljum við kauptækifæri í bréfum Marels og Bakkavarar," segir í Morgunkorni greiningarinnar. Greining Glitnis segir að lykilþáttur í viðsnúningi á innlendum hlutabréfamarkaði er erlend fjármögnun. Fréttir af fjárfestingu erlendra aðila hér á landi og erlendri lánsfjármögnun eru því vísar til að hleypa lífi í markaðinn. Af þróun lánsfjárkrísunnar á erlendum mörkuðum er vart hægt að búast við umtalsverðum bata á þessu ári. Krísan hefur verið að grafa sig dýpra á síðustu vikum. Áhættufælni hefur aukist og skuldatryggingaálag hækkað verulega. Stórir hlutar alþjóðlegra lánsfjármarkaða eru enn því sem næst lokaðir, spár um afkomu fjármálafyrirtækja í helstu iðnríkjum hafa verið lækkaðar verulega og lánshæfiseinkunnir margra þeirra sömuleiðis. „Eflaust mun það taka eitthvað fram á næsta ár að endurvinna traust lánveitenda og fjárfesta og snúa hlutabréfamarkaðnum hér heima úr því lækkunarferli sem hann hefur verið í yfir í hækkun," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fá að kaupa Pei og Motus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sjá meira