Jákvætt að ríkið geti tekið lán við erfiðar markaðsaðstæður 2. september 2008 16:34 Ásgeir Jónsson er forstöðumaður greiningardeildar Kaupþings. MYND/Anton
Greiningardeild Kaupþings segir mjög jákvætt að ríkið geti sýnt fram á að það geti tekið lán við jafn erfiðar markaðsaðstæður og raun ber vitni. Í hálffimmfréttum greiningardeildarinnar er fjallað um þá tilkynningu Geirs H. Haarde forsætisráðherra að ríkið hafi tekið um það bil 30 milljarða króna lán til að styrkja gjaldeyrisvaraforðann og er hann nú samtals 300 milljarðar eða um fjórðungur af vergri landsframleiðslu. „Ef teknar eru með í reikninginn mögulegar lánalínur Seðlabankans við erlenda seðlabanka, sem eru 1.500 milljónir evra samtals, er gjaldeyrisvaraforðinn því tæplega 500 milljarðar króna eða um 40% af VLF. Fram kom í ræðu forsætisráðherra að lánið sé á töluvert hagstæðari kjörum en áður hafa boðist og langt undir því álagi sem skuldatryggingarálag á ríkissjóð gefur til kynna að sé í boði. Skuldatryggingarálag ríkissjóðs er sem stendur 256 punktar ofan á Libor-vexti. Upphæðin nú er í takt við fyrri ummæli forsætisráðherra sem gáfu til kynna að lántökuheimild til eflingar gjaldeyrisvaraforðans yrði nýtt í smáum skömmtum," segir greiningardeildin. 370 milljarða heimild eftir Greiningardeildin segir að ríkisstjórnin hafi nú ráðstafað um 130 milljörðum af þeirri 500 milljarða króna lántökumheimild sem fékkst á Alþingi í vor. Því standa eftir um 370 milljarðar af umræddri heimild. Í hálffimmfréttunum er bent á að gengi krónunnar hafi styrkst eftir tilkynningu forsætisráðherra, mest um 1,2 prósent, en styrkingin hafi við lokun gjaldeyrismarkaða verið 0,6 prósent. „Lántaka upp á 30 milljarða króna hefur væntanlega ekki gert útslagið í styrkingu dagsins og má ætla að krónan hafi fyrst og fremst styrkst vegna jákvæðrar þróunar á erlendum hlutabréfamörkuðum sem hafa tekið vel miklum lækkunum á olíuverði síðustu daga. Hins vegar er mjög jákvætt að ríkið geti sýnt fram á að það geti tekið lán við jafn erfiðar markaðsaðstæður og raun ber vitni," segir greiningardeild Kaupþings.
Mest lesið Hækka stýrivexti Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Sjá meira