Viðskipti innlent

Samkeppniseftirlitið fellst á kaup Teymis í Tali

Árni Pétur Jónsson er forstjóri Teymis.
Árni Pétur Jónsson er forstjóri Teymis.

Samkeppniseftirlitið hefur fallist á kaup IP-fjarskipta á öllu hlutafé í Ódýra símafélaginu og síðan kaup Teymis á rúmlega helmig hlutafjár í IP-fjarskiptum.  Þetta kemur fram á vef Samkeppniseftirlitsins.

Að mati Samkeppniseftirlitsins fela kaupin í sér samruna í skilningi samkeppnislaga. Sátt var gerð í málinu við Teymi og IP-fjarskipti um setningu skilyrða sem ætlað er að tryggja að full óskoruð samkeppni muni ríkja á milli Vodafone og IP-fjarskipta sem einnig er þekkt undir nafninu Tal.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×