Viðskipti innlent

Aðgerðirnar viðamiklar og erfiðar

Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, segir aðgerðir sem fyrirtækið hefur þurft að grípa til séu mjög viðamiklar og erfiðar. Fyrirtækið hefur sagt upp 240 manns í 190 stöðugildum, 138 flugfreyjum, 88 flugmönnum og öðru starfsfólki.

Birki var gestur Höskulds Kára Schram í hádegisviðtali Stöðvar 2 þar sem farið var yfir málið. Birkir benti á að reglulega hafi verið miklar sveiflur í flugiðnaðinum, sumrin yfirleitt góð og svo þarf að draga saman seglin á veturna. Hann sagði að nú væri ástandið þó sýnu alvarlegra en venjulega. Efnahagsástandið í landinu ótryggt og olíuverðhækkanir á heimsmörkuðum gríðarlegar.

Hann sagðist þess þó fullviss að félagið komi tvíeflt út úr þessum þrengingum, mikilvægt væri að taka strax á vandanum og þau félög sem átti sig á því standi vel þegar betur fer að ára. Birkir sagði einnig að ekki stæði til að segja upp fleiri starfsmönnum, eins og er.



Birkir bendir á að stærsti vandinn þessa stundina sé aukinn eldsneytiskostnaður en að það sé ekki séríslenskt vandamál. Aðspurður um gengismálin sagði Birikir þau hafa áhrif, en einnig til góða því ferðir til Íslands verði eftirsóknarverðari erlendis ef krónan er veik. „Þegar vægi erlendra ferðamanna er mikið höfnumst við á gengisbreytingum sem þessum. Á haustin eykst vægi íslenskra ferðamanna og þá hefur slæm staða krónunnar meiri áhrif," sagði Birkir, sem ítrekaði að um tímabundnar aðgerðir væri að ræða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×