Guðlaugur vill halda áfram í atvinnumennskunni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. mars 2008 19:58 Guðlaugur Arnarsson í búningi Gummersbach.
Mál Guðlaugs Arnarssonar og Valdimars Þórssonar, leikmanna HK Malmö í Svíþjóð, eru í biðstöðu eins og er en þó þykir nokkuð ljóst að þeir eru á leið frá félaginu. Í gær varð það endanlega ljóst að félagið myndi falla í næstefstu deild og á heimasíðu félagsins sagði að þeir væru báðir á leið frá félaginu. Valdimar sagði í samtali við Vísi að hann væri að bíða eftir því að fá fund með forráðamönnum félagsins. „Það eina sem ég veit er það sem ég hef lesið í fjölmiðlum. Ég á eitt ár eftir af samningi mínum, sem er reyndar með endurskoðunarákvæði í lok tímabilsins, og sé ég ekki fyrir mér að eitthvað félag vilji kaupa mig." „En ég veit ekki hvort þeir vilji rifta samningnum mínum. Það verður að koma í ljós." „Hvað mig persónulega varðar vegur kannski þyngst að kærastan mín og ungur sonur eru heima á Íslandi. Það er ekki gaman að hanga hérna einn. Ég er líka orðinn nokkuð þreyttur á handbolta eftir þennan vetur." Valdimar segist þó ætla að halda áfram að spila handbolta. Guðlaugur ætlar að halda áfram í atvinnumennskunni og er með nokkur járn í eldinum. „Þetta gæti skýrst á næstunni en það er best að segja sem minnst sem stendur. En þetta lítur alls ekkert illa út hjá mér." Hann segir þennan vetur hafa verið nokkuð mikil vonbrigði fyrir sig og sitt lið. „Ástæðurnar eru margar eins og alltaf. Liðið fékk tíu nýja leikmenn á öllu tímabilinu og skipti til að mynda um markvörð á miðu tímabili. Það skilaði engu. Á endanum var liðið bara ekki nógu gott og því fór sem fór."
Handbolti Mest lesið Eitt frægasta íþróttapar Bandaríkjanna tilkynnir um sambandsslit Fótbolti „Algjört kjaftæði og menn verða að fara taka sig aðeins saman í andlitinu“ Sport Stighæsti leikmaður Ólympíuleikanna látinn Körfubolti Þurftu að stækka þýska meistaraskjöldinn Fótbolti „Verðum að laga þetta ef við ætlum að láta taka okkur alvarlega“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Stjarnan - FH 3-2 | Andri Rúnar reyndist Stjörnunni gulls ígildi Íslenski boltinn Kjósa um hvort næsta tímabili Sveindísar verði snúið við Fótbolti „Andri Rúnar færir liðinu mjög mikið“ Fótbolti „Hefðum átt skilið stig úr þessum leik“ Fótbolti „Akkúrat núna þá gæti mér ekki verið meira sama“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli aftur með yfir fimmtíu prósent markvörslu Uppgjörið: Haukar-FH 35-36 | Nágrannarnir sendu Hauka í sumarfrí Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Gróttukonur sóttu dýrmætan sigur í Mýrina Einar Bragi frábær þegar Kristianstad tryggði sig í undanúrslit Guðjón Valur stýrði Gummersbach til sigurs í ellefta leiknum í röð Elín Klara og félagar sópuðu Skuru í sumarfrí Riðill Íslands á EM klár: Mætast aftur eftir frækna sigurinn Þurftu að stöðva leikinn þar til að hann slökkti ljósin Uppgjör: Valur-Fram 26-24 | Ótrúleg endurkoma meistaranna í fyrsta leik Stjarnan heldur sæti sínu í Olísdeild karla Haukakonur með frábæran sigur í Eyjum Viktor Gísli með 54 prósent markvörslu í spænsku deildinni Óðinn og Lena Margrét með sópinn á lofti í úrslitakeppninni Benedikt byrjaði úrslitakeppnina vel Langur samningur og krafan er skýr „Ætla að klára þetta með stæl og vonandi landa þeim stóra“ „Ekkert annað sem freistaði mín meira en þetta“ „Auðvitað bara dugar þetta ekki“ „Undirbúningur, hjartað og baráttan“ „Ekki til betri skemmtun en þetta“ Uppgjörið: FH - Haukar 27-23 | FH-ingar einum sigri frá úrslitum Guðjón Valur missir besta leikmann liðsins í slæm meiðsli „Skemmtilegustu leikirnir að spila“ Fengu tveggja ára bann fyrir að svindla á þolprófi Snorri semur til 2032 Svona kynnti HSÍ nýja samninginn við Snorra og Arnór Díana fer aftur til Fram Sópurinn aftur inn í skáp hjá bæði Birgi Steini og Einari Braga Uppgjörið: Valur - KA 38-34| Valsmenn sópuðu KA í sumarfrí Sjá meira