Viðskipti innlent

Fjórðungur fyrirtækja skilar ársreikningi of seint

MYND/Páll

Um fjórðungur fyrirtækja á enn eftir að skila ársreikningum fyrir tekjuárið 2006, tíu mánuðum eftir að skilafrestur rann út. Þetta kemur fram í könnun fyrirtækisins CreditInfo Ísland. Í tilkynningu frá féalginu segir að þetta þýði að fjöldi fyrirtækja sem enn eigi eftir að skila ársreikningum sé ríflega 6100.

Alls eiga 25.157 fyrirtæki sem skráð eru í hlutafélagaskrá að skila inn ársreikningi fyrir rekstrarárið 2006. Frestur til þess var til 31. ágúst 2007 og hafa tæplega 18.900 fyrirtæki þegar skilað ársreikningum.

Ef skoðuð eru skil ársreikninga frá fyrirtækjum af landsbyggðinni má sjá að yfir 80 prósent þeirra fyrirtækja sem starfrækt eru á Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra og Austfjörðum hafa skilað inn ársreikningi fyrir árið 2006. Flest fyrirtæki eru starfrækt a höfuðborgarsvæðinu og hafa tæplega 75 prósent þeirra skilað inn ársreikningum. Ekki er afgerandi munur á skilum ársreikninga á milli atvinnugreina.

Creditinfo Island vekur athygli á því að samkvæmt reglugerð sem von sé á frá fjármálaráðuneytinu á næstu vikum muni Ársreikningaskrá brátt hafa heimild til að beita sektum skili fyrirtæki ekki inn ársreikningum á tilsettum tima. Skilafrestur ársreikninga fyrir rekstrarárið 2007 rennur út 31. ágúst næstkomandi.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×