Fundað með ráðherra um stöðu SPM 14. ágúst 2008 12:17 Frá Borgarnesi. MYND/Vilhelm
Um fimm hundruð manns sóttu fund um málefni Sparisjóðs Mýrasýslu í Borgarnesi í gærkvöldi. Fram kom á fundinum að eigið fé sjóðsins hefur rýrnað um fjóran og hálfan milljarð á fyrstu sex mánuðum þessa árs. Íbúafundur um Sparisjóð Mýrasýslu var fjölmennur. Hann sóttu um 500 manns. Á fundinum fóru stjórnendur sjóðsins yfir stöðu hans nú eftir sex mánaða uppgjör. Þar kom fram að eigið fé sjóðsins hefur rýrnað mjög mikið það sem af er árinu, eða um fjóran og hálfan milljarð króna en það er nú um einn og hálfur milljarður. Fyrir liggur viljayfirlýsing um að Kaupþing eignist 70 prósent af stofnfé sparisjóðsins, en sveitarfélagið mun eiga áfram um 20 prósent. Einn frummælenda á fundinum í gærkvöldi var Páll S. Brynjarsson sveitarstjóri. Hann segir í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 að skýringin á tapinu sé þríþætt. Sparisjóðurinn hafi eins og önnur fyrirtæki tapað á falli hlutabréfa, töluverðar afskriftir hafi verið á fyrri helmingi ársins og sjóðurinn hafi tapað á dótturfyrirtækjumm Íbúar í Borgarbyggð eru um 3700. Tapið er því rúmlega ein milljón á hvern íbúa. Fundarmenn spurðu um stöðu sparistjóðsins nú og hvort þeir þyrftu að óttast um inneignir sínar hjá sjóðnum. Sparisjóðsstjórinn fullyrti að ekkert væri að óttast, sparisjóðurinn væri sterkur. Aðspurður hvort einhver verði kallaður til ábyrgðar á stöðunni eins og hún er nú segir Páll að menn hafi verið í því verkefni að bjarga sjóðnum úr þeirri stöðu sem hann sé í í dag. Menn hafi einbeitt sér að því og hitt hafi ekki verið rætt. Fulltrúar sveitarfélagsins ætla að funda í dag með viðskiptaráðherra um stöðu sparisjóðsins.
Mest lesið Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Húsnæði Kjötborgar til sölu Viðskipti innlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Viðskipti innlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Fleiri fréttir Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Sjá meira