Ekki óskað eftir því að ráðast tafarlaust í lántöku 14. ágúst 2008 15:43 MYND/GVA
Fjármálaráðuneytið segir að misskilnings gæti í umræðunni um lántöku ríkisins sem ætlað er að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabankans. Ekki hafi verið óskað eftir heimildinni til þess að ráðast tafarlaust í 500 milljarða króna lántöku. Bent er á í vefriti fjármálaráðuneytisins að í athugasemdum með frumvarpi um lántökuheimildina segi að ekki liggi fyrir hvenær árinu, að hvaða marki, í hvaða áföngum eða í hvaða hlutföllum heimildin verði nýtt enda muni það ráðast af aðstæðum. Segir ráðuneytið að eftir að heimildin hafi verið fengin hafi verið unnið að málinu í samræmi við þetta og þegar hafi verið tekin ákvörðun um auknar innlendar lántökur ríkissjóðs í formi ríkisbréfaútgáfu og gjaldeyrisforðinn hafi verið aukinn nokkuð með útgáfu ríkisvíxla í evrum og dölum. „Eins og fram kom í kostnaðarumsögn með frumvarpinu mun árleg afkoma ríkissjóðs versna um 500 milljónir króna fyrir hvert 0,1 % (10 punkta) sem vaxtakostnaður ríkissjóðs af lántökunni verður hærri en vaxtatekjur, miðað við að lántökuheimildin yrði nýtt að fullu. Það skiptir því ekki litlu að rétt sé á málum haldið," segir í vefritinu.
Mest lesið Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Icelandair ræður þrjá nýja stjórnendur til starfa Viðskipti innlent Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Fleiri fréttir Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Sjá meira