Ekkert gufubað við Laugarvatn næstu ár Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar 9. júlí 2008 06:00 Engin aðstaða hefur verið við gufubaðið að Laugarvatni í tvö ár. Heimamenn lauma sér þó stundum í gufu, því sjálft gufubaðshúsið stendur enn. Mynd/Egill
Á Laugarvatni er nú ekki starfrækt gufubað líkt og verið hefur um áratugaskeið. Aðstaða við gamla gufubaðið var rifin í fyrra því ætlunin er að reisa nýja og glæsilega heilsulind á svæðinu. Þorsteinn Kragh, einn talsmanna verkefnisins, sagði við Fréttablaðið árið 2006 að jafnvel yrði hægt að opna nýju aðstöðuna í september árið 2007. Framkvæmdir eru ekki hafnar. Valtýr Valtýsson, sveitarstjóri Bláskógabyggðar, segir gufubað vera eitt af sérkennum staðarins. „Við bíðum eftir að þetta rísi og heilsulindin verði að veruleika. Ég hef fulla trú á verkefninu,“ segir Valtýr. Spurður hvort menn hafi verið of fljótir á sér að rífa gömlu aðstöðuna segir hann að það hafi verið gert miðað við fyrirliggjandi plön þá. „Menn voru að vinna miðað við áætlanir þess tíma. Fyrirtækið verður að svara fyrir framkvæmdirnar, við höfum ekki fengið neina dagsetningu frá þeim. En þjónustuna vantar.“ Fyrirtækið Gufa ehf. stendur að framkvæmdunum. Byggingarfélag námsmanna á stóran hlut í fyrirtækinu. Fyrrverandi framkvæmdastjóri þess, Benedikt Magnússon, sat í stjórn þess. Hann sætir nú rannsókn efnahagsbrotadeildar lögreglu. Kristján Einarsson, framkvæmdastjóri Gufu, segir að margt skýri þær tafir sem orðið hafi á framkvæmdunum. Nefna megi Gjábakkaveg, en framkvæmdir á Laugarvatni hafi átt að haldast í hendur við þá samgöngubót. „Við vonumst til þess að geta boðið verkefnið út í haust. Þetta er heilmikil framkvæmd og gangi allt vel ættum við að geta hafið starfsemi vorið 2010.“ Þá verða fjögur ár frá því gamla aðstaðan var rifin. Hollvinasamtök Smíðahúss og gufubaðs á Laugarvatni beittu sér fyrir stofnun Gufu ehf. Samtökin hafa fengið níu milljónir króna frá Húsafriðunarnefnd vegna gufubaðs og smíðahúss á Laugarvatni, þar af fimm og hálfa milljón af fjárlögum. Grímur Sæmundsen, framkvæmdastjóri Bláa lónsins, segir tafirnar ekki skaða fyrirtækið. Hann segir að um fjárfestingu upp á 200 til 300 milljónir sé að ræða og rekstur upp á 100 til 150 milljónir króna á ári. Nokkuð hefur borið á óánægju heimamana með tafir og frágang á verkefninu. Svæðið er girt af, en engar merkingar er að finna um hvað sé væntanlegt og hvenær.
Mest lesið Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira