Óvíst hvort starfsmenn MEST fái greidd laun 24. júlí 2008 12:15
Töluverður uggur er meðal starfsmanna byggingafyrirtækisins Mest ehf eftir að Glitnir tók yfir hluta rekstursins. Óvíst er hvort starfsmenn fái greidd laun um næstu mánaðamót. Glitnir banki tók á mánudaginn yfir þann hluta Mest sem snýr að rekstri steypustöðva og helluframleiðslu en bankinn var í hópi stærstu kröfuhafa. Mest hefur átt í töluverðum fjárhagserfiðleikum á þessu ári og þurft að segja upp tugum starfsmanna. Um áttatíu manns vinna nú hjá fyrirtækinu sem rekur meðal annars byggingavöruverslanir og tækjaleigu. Boðað var til starfsmannafundar í gær með fulltrúum frá kjarasviði VR. Á fundinum kom meðal annars fram að mikil óvissa ríkir um framtíð fyrirtækisins og óvíst að starfsmenn fái greidd laun um næstu mánaðamót. Verslunum fyrirtækisins hefur verið lokað - vegna skipulagsbreytinga - en ekki liggur fyrir hvort þær verði opnaðar á ný. Þá hefur félagið verið skráð á nýja kennitölu undir heitinu Tæki, tól og byggingavörur ehf. Ekki náðist í Pétur Guðmundsson, stjórnarformann fyrirtækisins, í morgun. Í samtali við fréttastofu á mánudaginn boðaði Pétur hins vegar frekari skipulagsbreytingar hjá fyrirtækinu og útilokaði ekki uppsagnir.
Mest lesið Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Viðskipti innlent Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Viðskipti innlent Samtali haldið áfram við Wolt sendla sem lögðu niður störf Viðskipti innlent Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Atvinnulíf Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Viðskipti innlent Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Viðskipti erlent Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Neytendur Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Viðskipti innlent Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samtali haldið áfram við Wolt sendla sem lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Sjá meira