Kaupþing með 70 prósenta hlut í SPM 1. ágúst 2008 11:28 Gísli Kjartansson, sparissjóðsstjóri SPM.
Stjórn Sparisjóðs Mýrasýslu hefur ákveðið að leggja til við fund stofnfjáreigenda að stofnfé sjóðsins verði aukið um 2 milljarða króna. Stjórnin leggur ennfremur til að Borgarbyggð falli frá rétti sínum til þess að skrá sig fyrir nýju stofnfé en verði þó áfram í hópi stofnfjáreigenda með um 20 prósent í sjóðnum. Kaupþing banki hefur skuldbundið sig til þess að skrá sig fyrir 1.750 milljónum og aðrir fjárfestar fyrir 250 milljónum. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Þar segir einnig að Kaupþing hafi jafnframt skuldbundið sig til þess að útvega SPM kaupanda að 8,73% eignarhlut Sparisjóðs Mýrasýslu í Icebank hf. „Eftir stofnfjáraukninguna verður hlutur Kaupþings í stofnfé SPM 70%, hlutur Borgarbyggðar 20% og annarra fjárfesta 10%. Áætlað er að fundur stofnfjáreigenda, þar sem tillaga stjórnar verður lögð fram, verði föstudaginn 15. ágúst," segir í tilkynningunni. „Rekstur SPM hefur verið erfiður á fyrri hluta ársins vegna slæms árferðis á fjármálamörkuðum. Með nýju stofnfé verður fjárhagslegur grundvöllur sjóðsins traustur og hann mun þjóna viðskiptavinum sínum vel hér eftir sem hingað til," segir Gísli Kjartansson, sparisjóðsstjóri. „Stjórn sjóðsins fagnar því að fjárhagslegur grundvöllur sjóðsins sé treystur og að Kaupþing hafi ákveðið að taka þátt í stofnfjáraukningunni. Stjórnin væntir góðs af samstarfinu við bankann," segir Sigurður Már Einarsson, formaður stjórnar sparisjóðsins. Að lokum segir að stofnfjáraukningin sé háð samþykki lánveitenda Sparisjóðs Mýrasýslu, Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlitsins.
Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Sjá meira