Viðskipti innlent

Verðbólga verður töluverð fram á næsta ár

Davíð Oddsson seðlabankastjóri.
Davíð Oddsson seðlabankastjóri.

Helstu ástæður þess að Seðlabankinn ákveður að halda stýrivöxtum óbreyttum er sú að verðbólga jókst verulega í kjölfar gengis lækkunar krónunnar á fyrstu mánuðum ársins og er nú meiri en bankinn spáði í apríl síðastliðinn. Þetta kemur fram í stefnuyfirlýsingu Seðlabanka Íslands, sem Davíð Oddsson seðlabankastjóri kynnti í morgun. Seðlabankinn telur að verðbólga verði töluverð fram á næsta ár en hjaðni síðan hratt. Bankinn segir að verðbólgumarkmiðið muni nást á þeim tíma sem spáð var í apríl með því að vextir verði lækkaðir síðar en áður hafði verið ráðgert.

Horfur á töluverðum samdrætti

Seðlabankinn segir að horfur séu á töluverðum samdrætti landsframleiðslu á næstu tveimur árum eftir öflugan hagvöxt um langt skeið. Sá vöxtur hafi ekki alltaf sjálfbær eins og mikill viðskiptahalli vitni um. Nokkur samdráttur sé því óumflýjanlegur til þess að jafnvægi náist á ný. Bankinn segir að minnkandi umsvif í þjóðarbúskapnum munu auðvelda Seðlabankanum að koma böndum á verðbólgu en samdráttur muni á hinn bóginn verða íþyngjandi fyrir marga, ekki síst þá sem skuldsettastir eru.



Mikilvægt að bankinn haldi stefnu sinni

Þá segir í stefnuyfirlýsingunni að samkvæmt lögum beri Seðlabankanum að stuðla að stöðugu verðlagi. Raddir heyrist um að tímabært sé að taka ríkara tillit til þeirra erfiðleika sem lánsfjárkreppa valdi atvinnulífi nú og víkja öðrum markmiðum til hliðar um lengri eða skemmri tíma. Slíkar aðgerðir til þess að örva atvinnulífið nú hefðu öfug áhrif því þær myndu leiða til lægra gengis, meiri verðbólgu og hærri verðbólguvæntinga og á endanum til meiri samdráttar í þjóðarbúskapnum. Þær myndu því veikja efnahag skuldsettra heimila og fyrirtækja og grafa undan fjármálalegum stöðugleika. Á komandi mánuðum sé mikilvægt að auka traust á fjármálakerfið og tryggja virkni markaða.

Mikilvægt að byggja upp traust

„Peningastefnan snýst um traust sem tekur langan tíma að byggja upp og festa í sessi. Miklu varðar að hvika hvergi á meðan ágjöfin er sem mest og halda fast við þau markmið sem sett hafa verið. Það mun bankinn gera svo hann geti af öryggi hafi ð og fylgt vaxtalækkunarferli þegar þau skilyrði hafa skapast. Brýnasta viðfangsefnið er enn sem fyrr að ná tökum á verðbólgu og koma í veg fyrir að aukning hennar að undanförnu valdi víxláhrifum launa, verðlags og gengis. Vissulega mun draga nokkuð úr kaupmætti á aðlögunarskeiði en það mun standa skemur en ella ef tekið er á framangreindum þáttum af festu," segir í stefnuyfirlýsingunni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×