Endurskoða spá um lækkun fasteignaverðs 31. júlí 2008 10:34
Greining Glitnis hefur endurskoðað spá sína um lækkun fasteignaverð á árinu. Nú reiknar greiningin með að íbúðaverð muni lækka um 6% yfir þetta ár. Þetta er lítilsháttar breyting frá fyrri spá um þróun íbúðaverðs þar sem gert var ráð fyrir 7% lækkun yfir árið. Í Morgunkorni greiningarinnar segir að ástæður þess að sýn þeirra á þróun íbúðarmarkaðarins hefur breyst nú eru meðal annars þær breytingar sem hafa orðið á ytri umgjörð markaðarins að undanförnu. Þá virðist sem sú raunverðslækkun íbúðahúsnæðis sem greining spáði ætli að verða meiri fyrir tilstilli verðbólgu en nafnverðslækkun íbúðahúsnæðis. Reyndar bendir flest til að sú leiðrétting sem mun eiga sér stað á íbúðarmarkaði í þessari niðursveiflu verði að mestu í gegnum mikla verðbólgu fremur en nafnverðslækkun íbúðahúsnæðis. Engu að síður er um talsverða nafnverðslækkun að ræða, enda er fátt sem styður við íbúðarmarkaðinn um þessar mundir. Reiknar greiningin með að aðstæður verði erfiðar allt fram á næsta ár. Væntingar neytenda um efnahagsástandið eru nú í sögulegu lágmarki, hægt hefur verulega á vexti einkaneyslu, kaupmáttur launa hefur dregist saman og útlit er fyrir aukið atvinnuleysi á seinni hluta ársins. Þá spilar brottflutningur erlends vinnuafls úr landi og mikið framboð af nýju húsnæði einnig stórt hlutverk í að auka þrýsting til verðlækkunar á íbúðarmarkaði.
Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Sjá meira