Eimskip gæti þurft að afskrifa milljarða Óskar Hrafn Þorvaldsson skrifar 10. júní 2008 14:25 Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips.
Svo gæti farið að Eimskip þurfi að afskrifa milljarða vegna kaupa sinna á breska fyrirtækinu Innovate Holdings í fyrra. Kaupverð var um tíu milljarðar á núverandi gengi en eftir nánari skoðun reyndist félagið ekki eins öflugt og gert var ráð fyrir í upphafi. Samkvæmt heimildum Vísis hefur slæmur rekstur og bág eiginfjárstaða gert það að verkum að forráðamenn Eimskips róa nú öllum árum að því að selja allt sem hægt er að selja út úr fyrirtækinu til að lágmarka skaðann. Eftir því sem Vísir kemst næst verður þó ekki komið í veg fyrir að afskrifa þurfi stóran hluta kaupverðsins. Þetta eru auðvitað slæm tíðindi fyrir Eimskip sem hefur fundið fyrir erfiðum markaðsaðstæðum líkt og önnu félög á markaði. Gengi bréfa í félaginu hefur lækkað um 42,2% frá áramótum. Ekki er vitað hvort þessar milljarðaafskriftir verði færðar til bókar í sex mánaða uppgjöri félagsins sem birt verður á föstudaginn í næstu viku. Halldór Kristmannsson, framkvæmdastjóri samskiptasviðs Eimskips, vildi ekki tjá sig um málið þegar Vísir ræddi við hann í dag. Ekki náðist í Gylfa Sigfússon, forstjóra félagsins.
Mest lesið Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Sjá meira