Óttast ekki rassskellingu í Noregi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. janúar 2008 15:57 Patrekur Jóhannesson er margreyndur landsliðsmaður. „
Ég er viss um að strákarnir í B-landsliðinu munu leggja sig 100 prósent fram í Noregi," sagði Patrekur Jóhannesson sem er nú staddur í Noregi með liðinu. Patrekur er einn þriggja sérfræðinga Vísis um EM í handbolta og mun segja sitt álit á íslenska liðinu bæði í aðdraganda mótsins sem og á meðan því stendur. Hann mun gegna hlutverki aðstoðarmanns Kristjáns Halldórssonar sem er þjálfari B-liðsins í Noregi. Þar mætir liðið auk heimamanna liði Ungverjalands og Portúgals sem verða með sína sterkustu menn á æfingamótinu í Noregi um helgina. „Þetta er frábært framtak hjá HSÍ að senda B-liðið á þetta mót. Þeir strákar sem hafa verið að banka á landsliðsdyrnar fá nú tækifæri til að kynnast umhverfinu, læra leikkerfi landsliðsins og það mun auðvelda þeim að koma upp í A-liðið seinna." Nokkrir leikmenn sem verða í íslenska landsliðinu á EM í handbolta eru einnig í Noregi til að öðlast meiri leikæfingu. „Til dæmis Einar Hólmgeirsson og Sigfús Sigurðsson hafa lítið spilað í haust með sínum liðum og þetta er kjörið tækifæri fyrir þá." Liðið kom til Noregs í gær og mætti Ungverjalandi í sínum fyrsta leik í dag. „Það er virkilega góð stemning í hópnum og allir staðráðnir í að sanna sig. Þetta er jú fyrst og fremst tækifæri fyrir þessa stráka að sýna hvað þeir geta. Þarna verða öll hin liðin með sína sterkustu leikmenn og það verður krefjandi fyrir strákana að fá að kljást við þá." Hann óttast þó ekki að liðið verði rasskellt í Noregi. „Nei, alls ekki. Þetta er þó vissulega hópur sem hefur lítið spila saman en ég er handviss um að menn muni leggja sig alla fram. Það verður nauðsynlegt að sýna samstöðu og halda einbeitingunni." „Það er einnig ljóst að ef A-liðið væri að spila á þessu móti væri það mjög krefjandi fyrir þá, hvað þá fyrir B-liðið. En tilgangurinn er að auka breiddina og ég held að þetta sé kjörið tækifæri til þess."
Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Króatía 29-30 | Aftur súrt tap gegn Króötunum hans Dags Handbolti Líkur Íslands á verðlaunum hafa snaraukist Handbolti Botna ekkert í Snorra: „Við erum teknir í bólinu“ Handbolti „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti „Hann er sonur minn“ Fótbolti „Tveggja ára barn að labba við sundlaugarbakkann og enginn gerði neitt“ Handbolti Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Basl á Bóndadaginn Handbolti Skýrsla Vals: Ekki aftur Handbolti „Þurfum við ekki að fá fleiri varða bolta?“ Handbolti Fleiri fréttir Svíar voru fljótir að snúa við blaðinu í seinni hálfleik „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Skýrsla Vals: Ekki aftur Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Ungverjar með magnaða endurkomu en hvorugt náði Íslandi að stigum EM í dag: Ísland fer alltaf Krýsuvíkurleiðina „Náðum ekki að hjálpa markvörðunum okkar nóg“ „Þeir spila hægan bolta og reyna að svæfa mann“ „Þetta er klárlega högg“ Aron Kristjáns tapaði líka með minnsta mun Einkunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Basl á Bóndadaginn „Fannst við stýra leiknum vel og láta þetta fara í okkar átt“ „Tveggja ára barn að labba við sundlaugarbakkann og enginn gerði neitt“ Tölurnar á móti Króatíu: 15-1 fyrir Króata í mörkum með langskotum „Þurfum við ekki að fá fleiri varða bolta?“ Botna ekkert í Snorra: „Við erum teknir í bólinu“ Þorsteinn inn en Andri og Elvar fyrir utan Myndir: Fjölskyldustemning í Fan Zone Elvar úr leik í átta vikur: „Hans verður sárt saknað“ Líkur Íslands á verðlaunum hafa snaraukist „Hann gæti gert fullt af sóknum léttari“ Ómar segist eiga meira inni Svona var EM-Pallborðið: Allt sem þarf að vita fyrir stórleikinn í dag Uppgjörið: Ísland - Króatía 29-30 | Aftur súrt tap gegn Króötunum hans Dags „Ef ég hitti Dag þá mun ég knúsa hann“ „Virkar eins og maður sé að væla“ Besta sætið um sóknarleikinn: „Að mínu mati dugar þetta ekki til“ Danir svöruðu fyrir Portúgalstapið og unnu Evrópumeistarana Elvar vildi ekki stela fjölskyldubílnum Hakkar í sig þá sem vildu reka Alfreð Gíslason Sjá meira