Greining Glitnis væntir óbreyttra stýrivaxta 26. júní 2008 11:22
Greining Glitnis segir að hámarki stýravaxta sé nú náð í 15,5% og væntir þess að bankastjórn Seðlabankans haldi vöxtum óbreyttum á næsta vaxtaákvörðunarfundi 3. júlí nk. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Glitnis. Þar segir að á sama tíma og verðbólguþrýstingur hefur farið vaxandi innanlands sem erlendis hafa hagvaxtarhorfur versnað. Nýlegar landsframleiðslutölur Hagstofunnar fyrir fyrsta ársfjórðung benda til hraðari kólnunar hagkerfisins en Seðlabankinn gerði ráð fyrir í síðustu þjóðhagsspá. Fjöldi vísbendinga bendir til að frekar hafi hægt á vexti innlendrar eftirspurnar á öðrum ársfjórðungi. Merki þess sjást meðal annars í minni veltu á húsnæðismarkaði, lækkun húsnæðisverðs, fækkun nýskráninga bifreiða auk þess sem kaupmáttur launa hefur dregist saman. Greiningin spáir því að Seðlabankinn hefji vaxtalækkunarferli sitt í nóvember með 0,50 prósentustiga lækkun vaxta og að stýrivextir verði 15% í árslok. Þá er reiknað með örum vaxtalækkunum á næsta ári eftir því sem hjól efnahagslífsins fara að snúast hægar, einkaneysla dregst saman, bati verður á ytra jafnvægi þjóðarbúsins og dregur úr verðbólguþrýstingi, og að vextir standi í 8% í árslok 2009. „Færa má gild rök fyrir því að rétt væri fyrir Seðlabankann að lækka vexti fyrr og hraðar en spá okkar gerir ráð fyrir, þar sem stýrivextir Seðlabankans bíta mun fastar nú eftir að aðgengi að erlendu lánsfé skertist og vísbendingar eru um að hagkerfið kólni nú mjög hratt," segir í Morgunkorni greiningar Glitnis „Auk þess myndu lækkandi vextir vart grafa meira undan gengi krónu en orðið er, enda vaxtamunurinn við útlönd lítt virkur þessa dagana. Með því að halda vöxtum svona háum lengi er bankinn í raun að bregðast við neikvæðum ytri skilyrðum þjóðarbúsins, þ.e. þáttum sem stýrivextir bankans bíta ekki á og með aðgerðum sínum keyrir hann hagkerfið niður í óþarflega mikla lægð. Við teljum þó að Seðlabankamenn líti þróunina öðrum augum en við og að vextir verði því líklega háir lengur en heppilegt væri."
Mest lesið Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Viðskipti erlent Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Fleiri fréttir Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Sjá meira