Við nýjan tón kveður í erlendri umfjöllun Óli Kristján Ármannsson skrifar 27. mars 2008 06:00 Óðagot á miðlurum Verðbréfamiðlarar í óðagoti eftir lækkanir í kauphöllinni í New York. Í leiðara Financial Times er sagt miður ef alþjóðlegt hræðsluástand yrði til að trufla gang efnahagsmála hér. Fréttablaðið/AP
Stoðir íslenska hagkerfisins eru traustar og bankar þjóðarinnar ólíklegri til að fara leið Northern Rock, segir í leiðara Financial Times í gær. Í blaðinu er að finna ítarlega umfjöllun um íslenskt efnahagslíf og banka, á forsíðu, inni í blaði og í leiðara. Í viðtali við blaðið segir Richard Portes, prófessor við London Business School, ekkert í rekstri eða aðstæðum íslenskra banka réttlæta skuldatryggingaálagið (CDS) sem þeir búa við. „CDS markaðurinn er mjög brenglaður. Hann byrjaði sem trygging á skuldir, en varð svo verkfæri fyrir spákaupmennsku,“ segir hann. Þá er vitnað í álit matsfyrirtækisins Moody‘s að stjórnvöld hér hafi aðgang að nægu fé, jafnt erlendu sem krónum, til að eiga við stóráföll í bankakerfinu, þrátt fyrir miklar erlendar skulbindingar bankanna. Í leiðara blaðsins er áréttað að landið og Seðlabankinn standi frammi fyrir nokkrum vanda við að koma böndum á verðbólgu og ná jafnvægi eftir uppgang í efnahagslífinu. „Það þýðir hins vegar ekki að Ísland lendi í kreppu,“ segir þar og bent á margvíslegan styrk þjóðarinnar, svo sem í sjávarútvegi, ferðamennsku, tækni, áliðnaði og á sviði jarðhita. „Miður væri ef hræðslukast á alþjóðlegum mörkuðum yrði til að gera nauðsynlegt aðlögunarferli til að ná tökum á verðbólgu erfiðara.“ „Mjög jákvætt er að sjá þarna ákveðinn viðsnúning í umfjöllun erlendra miðla, bæði í Financial Times í gær og daginn áður á CNBC,“ segir Finnur Oddsson, framvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands. „Þetta sýnir líka að samhent vinna hagsmunaðila hér við að koma á framfæri réttum upplýsingum er að skila sér.“
Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira