Sterling skipað að borga umdeild flugstjórnargjöld 1. september 2008 11:33
Eurocontrol, sem hefur yfirumsjón með flugumferðarstjórn í Evrópu, hefur skipað Sterling Air að borga umdeilda skuld sína við dönsku flugöryggisþjónustuna Naviair eða eiga annars á hættu að flugvélar félagsins verði kyrrsettar. Fjallað er um málið á vefsíðunni Business.dk og þar er greint frá bréfi sem Sterling barst í morgun frá Eurocontrol en þar er krafan og hótunin um kyrrsetningu sett fram. Að sögn Rulle Westergaard fjölmiðlafulltrúa Sterling var því ákveðið að borga þær 2,1 milljón dkr. eða rúmlega 34 milljónir kr. sem skuldin hljóðar upp á. Í sömu frétt kemur fram að SAS flugfélagið og önnur félög sem fljúga til og frá Danmörku eru mjög óánægð með þá þjónustu sem Naviair veitir og miklar hækkarnir sem orðið hafa á þjónustunni samhliða því að þjónustustigið hefur verið lækkað. Hafa flugfélögin ítrekað lent í seinkunum og öðrum vandræðum sökum þess. Því hafði Sterling neitað að greiða þessi gjöld frá því í júní í sumar. SAS hefur kvartað undan Naviair til danska samgönguráðherrans og íhugar að höfða skaðabótamál gegn Naviair. Almar Örn Hilmarsson forstjóri Sterling segir í samtali við Vísi.is að flugfélögin vinni lögfræðilegar hliðar þessa máls í sameiningu. "Við erum allir undir sama hatti í þessu máli," segir Almar Örn.
Mest lesið Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira