2 milljarða króna viðbótarútgáfa krónubréfa 8. ágúst 2008 11:36
Þýski þróunarbankinn KfW tilkynnti í gær um 2 milljarða króna viðbótarútgáfu í flokk krónubréfa sem er á gjalddaga 15. júlí 2010. Bréfin bera 9,5% vexti en krafan er nokkuð lægri þar sem bréfin voru seld á yfirverði (100,95). Í Morgunkorni Glitnis kemur fram að þetta er þetta önnur krónubréfaútgáfan frá því að þrenginga fór að gæta á innlendum gjaldmiðlaskiptamarkaði í marsbyrjun, sem hafa dregið verulega úr ábata af stöðutöku með krónu, en KfW gaf út 3 milljarða króna í sama flokki 3. júlí síðastliðinn. Telur flokkurinn nú 5 milljarða króna. Greining Glitnis segir að tímasetning útgáfunnar sé væntanlega ekki tilviljun þar sem krónubréf að nafnvirði 15 milljarðar króna séu á gjalddaga í dag og 5 milljarðar króna á gjalddaga á mánudaginn kemur auk áfallinna vaxta. Reikna megi með að útgáfan í gær sé framlenging á hluta þeirra bréfa sem nú séu á gjalddaga. Þá telur Greining Glitnis líklegt að ríkisbréf hafi verið keypt á móti útgáfunni og endurspeglist það í veltutölum á skuldabréfamarkaði. Heildarútistandandi krónubréf nemi nú ríflega 323 milljörðum króna og hafi staðan ekki verið minni frá því í desember 2006.
Mest lesið „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Sjá meira