Biðin eftir lántöku ríkissjóðs orðin kostnaðarmeiri en lánakjörin Friðrik Indriðason skrifar: skrifar 16. júní 2008 12:08
Leiða má gildum rökum að því að biðin eftir margboðaðri lántöku ríkisins og Seðlabankans til að styrkja gjaldeyrisvarasjóð bankans sé farin að kosta mun meira en nemur kostnaðinum við lántökuna. Menn í viðskiptaheiminum eru orðnir ansi langeygir eftir fyrirhugaðri lántöku ríkissjóðs. Það að þessi 500 milljarða króna heimild var ekki notuð strax af ríkisstjórn og Seðlabankanum til að styrkja gjaldeyrisforða landsins hefur leitt til meiri lækkana á gengi krónunnar og hlutabréfa en ella hefði orðið. Um þetta eru viðmælendur Vísir nokkuð sammála. Ríkissjóði og Seðlabanka er að vísu nokkur vorkunn því skuldatryggingarálag ríkisins er í hæstu hæðum og því ljóst að lántakan verður kostnaðarsöm. Á móti má spyrja hver verður kostnaður almennings af áframhaldandi falli krónunnar með tilheyrandi verðhækkunum innanlands. Svo ekki sé talað um kostnað fjárfesta af áframhaldandi falli úrvalsvísitölunnar. Og töpuðum skatttekjum ríkissjóðs vegna lélegs gengis félaganna í kauphöllinni. Viðmælendur Vísis eru sammála um að tækifærið fyrir ríkissjóð og Seðlabankann til að koma 500 milljarða króna heimildinni í lóg hafi verið dagana eftir að hún var samþykkt á alþingi. Þá fór skuldatryggingarálagið undir 200 punkta og hafði ekki verið lægra í langan tíma. En þetta þótti of hátt og menn ákváðu að bíða. Sú bið hefur gert það að verkum að margumræddur trúverðugleiki íslenska fjármálakerfisins heldur áfram að minnka. „Þessir menn eru einfaldlega að spila með fjöregg fjármálalífsins með þessari bið," segir einn af viðmælendum Vísis. Krafan sem viðskiptalífið gerir á hendur ríkissjóði og Seðlabankans er að þessir aðilar hysji upp um sig buxurnar og fari í umræddar lántökur strax. Þótt það sé kostnaðarsamt í augnablikinu hlýtur að vera hægt að fá svona stórt lán með breytilegum kjörum þannig að þegar skuldatryggingarálagið fer að lækka á ný njóti þeir góðs af slíku. Áframhaldandi bið á lántökunni þýðir aðeins óbreytt ástand. En það er víst erfitt að fá skýr svör um stöðuna hvað þetta lán varðar. Spurningar um slíkt eru taldar dónaskapur á stjórnarheimilinu.
Mest lesið Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fá að kaupa Pei og Motus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Sjá meira