Eimskip afskrifar nærri níu milljarða 11. júní 2008 09:22 Gylfi Sigfússon er forstjóri Eimskips.
Eimskipafélag Íslands hefur afskrifað eignarhlut í dótturfélagi sínu, Innovate Holding, í Bretlandi eins og Vísir greindi fyrstur frá í gær. Bókfært virði eignarhluts er 74,1 milljónir evra, jafnvirði nærri níu miljarða króna, sem afskrifaður er að fullu á öðrum ársfjórðungi. Í tilkynningu frá Eimskipum til Kauphallarinnar segir að unnið sé að sölu félagsins í samstarfi við ráðgjafa í Bretlandi. Innovate sérhæfir sig í hitastýrðum flutningum og geymslum í Bretlandi og starfrækir m.a. um 25 vörugeymslur á 11 stöðum. Eimskip fjárfesti í Innovate á árunum 2006-2007 og á félagið að fullu. „Markaðsaðstæður í Bretlandi hafa verið erfiðar undanfarna mánuði og nýting vöruhúsa og flutningakerfa verri en búist hafði verið við. Samhliða uppbyggingu Innovate gerði félagið langtímaleigusamninga vegna vöruhúsa og flutningakerfis, en forsendur um nýtingu þeirra hafa ekki gengið eftir. Þá hefur fjármagns- og leigukostnaður félagsins í hlutfalli af tekjum einnig stóraukist og taprekstur gert það að verkum að félagið er of veikburða til að halda áfram starfsemi," segir í tilkynningu Eimskips. Stjórn Eimskip mun láta framkvæma ítarlega skoðun á því ferli sem viðhaft var við kaupin á Innovate. Fyrrum eigendur Innovate, þeir Stephen Savage, Stephen Dargavel og Peter Osborne, hafa allir látið af störfum og hætt í framkvæmdastjórn Eimskips. Þá segir Eimskip að í ljósi fyrirsjáanlegs samdráttar í flutningum muni félagið á næstu mánuðum leita leiða til að hagræða í rekstri og aðlaga félagið að breyttum markaðsaðstæðum. Siglingakerfi Eimskips sé sveigjanlegt og einn af helstu styrkleikum þess sé hversu fljótt það geti aðlagað sig að breyttum aðstæðum og munu stjórnendur félagsins skoða þau mál gaumgæfilega á næstu mánuðum.
Tengdar fréttir Eimskip gæti þurft að afskrifa milljarða Svo gæti farið að Eimskip þurfi að afskrifa milljarða vegna kaupa sinna á breska fyrirtækinu Innovate Holdings í fyrra. Kaupverð var um tíu milljarðar á núverandi gengi en eftir nánari skoðun reyndist félagið ekki eins öflugt og gert var ráð fyrir í upphafi. 10. júní 2008 14:25 Mest lesið Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Viðskipti erlent Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Sjá meira
Eimskip gæti þurft að afskrifa milljarða Svo gæti farið að Eimskip þurfi að afskrifa milljarða vegna kaupa sinna á breska fyrirtækinu Innovate Holdings í fyrra. Kaupverð var um tíu milljarðar á núverandi gengi en eftir nánari skoðun reyndist félagið ekki eins öflugt og gert var ráð fyrir í upphafi. 10. júní 2008 14:25