Stoðir töpuðu 11,6 milljörðum eftir skatta 29. ágúst 2008 15:48 Jón Sigurðsson, forstjóri Stoða.
Stoðir, sem áður var FL Group, töpuðu 10,2 milljörðum króna fyrir skatta á öðrum ársfjórðungi 2008. Tap eftir skatta nemur 11,6 milljörðum króna. Í tilkynningu frá félaginu segir að tapið sé að mestu tilkomið vegna fjármagnskostnaðar og lækkunar á markaðsverðmæti eignarhlutar félagsins í Glitni banka. „Á síðastliðnum mánuðum hafa Stoðir haldið áfram að endurskipuleggja eignasafn sitt og selt fjölmargar eignir. Hlutabréf félagsins voru skráð úr kauphöll í júní síðastliðnum, nafni félagsins var breytt í Stoðir í byrjun júlí og tilkynnt var um kaup félagsins á kjölfestuhlut í Baugi Group." Þá segir einnig að við lok annars ársfjórðungs hafi eigið fé Stoða verið 87 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall í fjárfestingastarfsemi 29,2%. „Eftir kaup á eignarhlut í Baugi Group verður eiginfjárhlutfall (proforma) í fjárfestingastarfsemi um 35%. Eignir félagsins við lok annars ársfjórðungs námu 352 milljörðum króna" Jón Sigurðsson forstjóri Stoða, segir að afkoma félagsins á öðrum ársfjórðungi beri ótvíræð merki þess umróts sem einkennt hefur fjármálamarkaði frá miðju ári 2007. „Lækkun á gengi hlutabréfa og hár fjármagnskostnaður skýra tap fjórðungsins. Við höfum haldið endurskipulagningu félagsins áfram og hefur einn þáttur þess ferlis verið sala eigna sem ekki féllu undir breytta fjárfestingastefnu Stoða. Afskráning félagsins var mikilvægt skref og rökrétt að mínu viti, og hið sama má segja um breytingu á nafni félagsins; Stoðir gefa rétta mynd af núverandi starfsemi félagsins," segir Jón og bætir því við að með kaupum Stoða á Baugi Group aukist eigið fé Stoða um 25 milljarða króna „og Baugur Group bætist í hóp kjarnafjárfestinga félagsins, þar sem fyrir voru Glitnir, TM og Landic Property. Meginhlutverk Stoða er að efla og styðja þessi félög og veita þeim kjölfestu til framtíðar."
Mest lesið „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Sjá meira