Ólíðandi að sveitarfélög fái ekki til sín hluta fjármagnstekjuskatts 5. ágúst 2008 18:49
Það er ólíðandi að fólk geti sent börn sín í skóla, notað heilsugæslu og nýtt sér þjónustu sveitarfélaga án þess að borga útsvar, segir varaformaður fjárlaganefndar, Kristján Þór Júlíusson. Þeir sem eingöngu greiða fjármagnstekjuskatt borga ekkert til sveitarfélaga. Ekki er vitað hversu stór sá hópur er. Um 25 milljarðar króna af skatttekjum einstaklinga í landinu renna óskiptir til ríkissjóðs. Þessir milljarðar eru skattur af fjármagnstekjum - skattstofn sem hefur tútnað út á síðustu árum, var rétt um 90 milljónir fyrir um áratug en er í dag kominn á þriðja tug milljarða. Árum saman hafa sveitarfélögin girnst hlutdeild í þessu fé og þær raddir orðið æ háværari eftir því sem fjármagnstekjuskatturinn hefur hækkað. Skiptar skoðanir hafa verið í liði ríkisstjórnarflokkanna hversu óeðlilegt þetta er og í fyrra aftók fjármálaráðherra það með öllu að veita sveitarfélögum hlutdeild í fjármagnstekjuskattinum. Það ætti hins vegar að vera grundvallaratriði að allir greiði skatt til sveitarfélagsins, að mati Kristjáns. Embætti ríkisskattstjóra gat ekki upplýst fréttastofu í dag um hversu margir greiða eingöngu fjármagnstekjuskatt, en ljóst er að megnið af þeim rynni til Reykjavíkur ef sveitarfélög fengju einfaldlega hlutfall af skattinum en Kristján vill sjá aðra útfærslu til að dreifa fénu jafnar um landið.
Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Sjá meira