Segir langtímahorfur íslenska hagkerfisins öfundsverðar 7. júlí 2008 11:18
Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðins segir langtímahorfur íslenska hagkerfisins öfundsverðar. Þetta kemur fram í áliti nefndarinnar eftir heimsókn hennar til landsins nýlega. Í álitinu sem birt er á heimasíðu Seðlabanka Íslands segir m.a. að íslenska hagkerfið sé auðugt og sveigjanlegt. Tekjur á mann eru meðal þeirra hæstu og tekjuójöfnuður einna minnstur í heiminum. Vinnu- og framleiðslumarkaðir eru opnir og sveigjanlegir. Stofnanir og umgjörð stefnumótunar eru öflugar og skuldir hins opinbera eru mjög litlar. Eftirtektarverð stjórnun á náttúruauðlindum landsins hefur gert Íslandi kleift að auka fjölbreytni hagkerfisins og stuðla að sjálfbærni. Síðan segir: "Hins vegar er hagkerfið á erfiðum og óvissum tímamótum. Komið er að lokum langvarandi innlends þensluskeiðs sem fjármagnað var með erlendum lánum. Arfurinn er útþandir efnahagsreikningar einkageirans, mikið þjóðhagslegt ójafnvægi og mikil þörf fyrir erlent fjármagn. Með þrengri alþjóðlegum lausafjárskilyrðum og viðkvæmu markaðsviðhorfi hafa íslensku bankarnir og íslenska krónan orðið fyrir miklum þrýstingi. Bankarnir hafa brugðist við með því að draga úr vexti útlána og hagræða á efnahagsreikningum sínum. Um leið og lausafjárskilyrði verða erfiðari viðfangs er tekið að hægja á í ofþöndu hagkerfinu. Stjórnvöld hafa þegar gripið til aðgerða til þess að efla traust á tímum erfiðari ytri skilyrða. Seðlabankinn hefur hækkað stýrivexti og víkkað lausafjárákvæði í lánveitingum sínum til þess að draga úr þrýstingi á gjaldeyrismarkaði og á innlendum mörkuðum. Einnig hefur hann aukið aðgang sinn að erlendu lausafé með gjaldeyrisskiptasamningum við aðra norræna seðlabanka. Stjórnvöld hafa lýst vilja til þess að stækka gjaldeyrisforða Seðlabanka Íslands og heitið því að sýna aðhald í ríkisfjármálum, styrkja fjárlagarammann og gera umbætur á Íbúðalánasjóði. Þegar horft er fram á veg munu stjórnvöld hafa það erfiða verkefni að greiða fyrir aðlögun hagkerfisins og samtímis draga úr áhættu með því að auka tiltrú á hagkerfið. Afar brýnt er að stefnan í peningamálum og ríkisfjármálum sé samstillt sem og aðgerðir sem beinast að því að leysa veikleika í fjármálakerfinu. Gert er ráð fyrir að verulega muni hægja á umsvifum í þjóðarbúskapnum Spáð er stöðnun í framleiðslu á árinu 2008 og 2-3% samdrætti árið 2009, einkum vegna samdráttar innlendrar eftirspurnar. Einkaneysla mun minnka samfara erfiðara aðgengi að lánsfé, leiðrétting mun eiga sér stað á fasteignaverði, efnahagsreikningur einkageirans mun minnka og kaupmáttur dragast saman. Miklar opinberar fjárfestingar og fjárfestingar í áliðnaði munu aðeins að hluta til ná að vega upp á móti miklum samdrætti í annarri fjárfestingu. Hreinn útflutningur mun stuðla að hagvexti meðan innflutningur dregst saman og útflutningur styrkist. Þar sem hagvöxtur kemur í minna mæli frá innlendum þáttum er búist við að viðskiptahallinn dragist saman. Gert er ráð fyrir að verðbólga verði áfram yfir verðbólgumarkmiði vel fram yfir árið 2008 í ljósi gengislækkunar krónunnar, hárra verðbólguvæntinga og áframhaldandi alþjóðlegs verðbólguþrýstings. Síðar munu aukinn framleiðsluslaki og lækkandi fasteignaverð hjálpa til við að minnka verðbólgu. Þessar horfur eru byggðar á þeirri forsendu að gengisvísitalan haldist nokkuð stöðug í nánustu framtíð."
Mest lesið Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Viðskipti erlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Sjá meira