Lánshæfishorfur ríkisins versna Óli Kristján Ármannsson skrifar 6. mars 2008 06:00 Breyttar lánshæfishorfur ríkisins eru raktar til lækkunar breytts mats Moody‘s á fjárhagslegum styrk bankanna; verra lánshæfi þeirra leiði sjálfkrafa til endurmats á áhættu ríkisins. Fréttablaðið/Valli
Horfum varðandi Aaa-lánshæfi íslenska ríkisins hefur verið breytt úr stöðugum í neikvæðar samkvæmt nýju mati alþjóðlega matsfyrirtækisins Moody‘s. Einkunnin er sú hæsta mögulega. Breyttar horfur eru fyrst og fremst til komnar vegna lækkunar fyrirtækisins á fjárhagsstyrkleikaeinkunn Kaupþings, Glitnis og Landsbankans fyrir helgi, að því er fram kemur í tilkynningu sem Moody‘s sendi frá sér í gær. Breytingin nær til einkunnar skuldabréfa ríkisins og fyrir landseinkunn innlána í erlendri mynt. Horfurnar haldast stöðugar fyrir skuldbindingar í erlendri og innlendri mynt. Joan Feldbaum Vidra, sérfræðingur Moody‘s, segir í rökstuðningi fyrir ákvörðuninni að mikilvægur þáttur fyrir Aaa-einkunn ríkis sé bankakerfi með háa meðaleinkunn fyrir fjárhagslegan styrk og bendir á að ekkert annað land í Aaa-flokki hafi bankakerfi með einkunn undir C. Hún segir stjórnvöld þó fullfær um að fást við áfall í bankakerfinu en bætir við að neikvæðar horfur gefi til kynna þá skoðun Moody‘s að „frekari framrás bankakerfisins á erlendri grundu muni reyna á getu stjórnvalda til að bregðast við áfalli á virkan hátt“. Í umfjöllun greiningardeildar Glitnis er bent á að Standard & Poor‘s hafi síðan í nóvember haft lánshæfismat ríkisins á neikvæðum horfum. Greiningardeild Landsbankans segir boltann hjá stjórnvöldum. „Enda segir í tilkynningu Moody"s að breyttar horfur endurspegli ekki róttækt endurmat á lánshæfi íslenska ríkisins heldur áhyggjur af atriðum sem stjórnvöld geta tekið á,“ segir í Vegvísi Landsbankans og bætt er við að með þessu sé gefið til kynna að á næstunni þurfi að efla gjaldeyrisforða Seðlabankans og festa í sessi samstarf við erlenda seðlabanka, sem tæki af allan vafa um aðgengi að lausafé og hver hefði hlutverk lánveitanda til þrautarvara.
Mest lesið Heimsins fyrsti billjónamæringur Viðskipti erlent Enn fjölgar aflýsingum Viðskipti innlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Viðskipti innlent Alvöru þægindi eftir átján holur Samstarf Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Viðskipti innlent Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn Atvinnulíf Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Viðskipti innlent Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Viðskipti innlent Fleiri fréttir Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Sjá meira