SpKef tapar á seinni hluta ársins Óli Kristján Ármannsson skrifar 6. mars 2008 06:00 Geirmundur Kristinsson
Hagnaður dróst saman um 60 prósent milli ára hjá Sparisjóðnum í Keflavík (SpKef) samkvæmt nýbirtu uppgjöri. Eftir skatta nam hagnaður sjóðsins árið 2007 tæplega 1,9 milljörðum króna, en var 4,8 milljarðar árið áður. Mikill viðsnúningur varð í rekstri sjóðsins á seinni hluta ársins, en fyrstu sex mánuðina hafði verið methagnaður í rekstrinum upp á rúma 4,6 milljarða króna, en árið endaði sem fyrr segir tæplega 1,9 milljörðum. Geirmundur Kristinsson, sparisjóðsstjóri SpKef, segir afkomu ársins viðunandi miðað við erfiðar markaðsaðstæður, en því sé ekki að neita að töluvert tap hafi verið á seinni hluta ársins. „Við eigum það stóra stöðu í Exista að það hafði mikil áhrif eftir að markaðir hrundu,“ segir hann. Eignin var færð á markaðsvirði í hálfsársuppgjöri. „Þetta truflar auðvitað eitthvað en horfir öðruvísi við hjá okkur sem á sínum tíma stofnuðum félagið og áttum. Þá hét þetta Scandinavian Holding, varð síðan Meiður og svo Exista. Út af fyrir sig höfum við bara notað eignarhlutinn sem við fengum út úr Kaupþingi á sínum tíma, en höfum ekki verið að fjárfesta neitt.“ Geirmundur segir stöðu sparisjóðsins góða. „CAD-hlutfall sjóðsins er fyrir 20 prósent,“ segir hann og kveður lausafjárstöðu sjóðsins líka góða og fjármögnunarþörf ekki mikla. „Við höfum engar áhyggur. Ástandið í fjármálaheiminum er vitanlega ekki gott, en kemur verr niður á mörgum öðrum en okkur.“ Fram kemur í ársreikningi SpKef að stjórn sjóðsins leggi til að greiddur verði 25 prósenta arður til stofnfjáreigenda af endurmetnu stofnfé sjóðsins. Stofnféð nemur tæpum 13,6 milljörðum króna. Arður til stofnfjáreigendanna 1.626 næmi því um 3,4 milljörðum króna. Aðalfundur SpKef verður haldinn 11. mars.
Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Sjá meira