Hann sagði að við værum feitir 13. febrúar 2008 15:00 Juande Ramos er harður í horn að taka Nordic Photos / Getty Images
Tékkneski táningurinn Tomas Pekhart hefur nú gefið skýringu á því af hverju markvörðurinn Paul Robinson er kominn út í kuldann hjá Juande Ramos, stjóra Tottenham. Pekhart veitti fjölmiðlum í heimalandi sínu viðtal í tilefni af leik Tottenham gegn gamla liðinu hans Slavia Prag í Evrópukeppninni annað kvöld. Þar segir hann að Paul Robinson hafi endanlega komið sér í ónáð hjá Ramos eftir að hann neitaði að hita upp fyrir undanúrslitaleikinn gegn Arsenal þann 9. janúar sl. - en þá var Robinson fyrst tilkynnt að hann ætti að sitja á bekknum. "Robinson lítur út fyrir að vera mjög reiður. Hann neitaði að hita upp fyrir leikinn gegn Arsenal og það gerði Ramos enn reiðari," sagði Pekhart. "Ramos er mjög strangur og leggur mikið upp úr aga. Enginn hefur þorað að ögra honum enda talar hann hvort sem er bara spænsku. Það er Gus Poyet sem talar enskuna," sagði framherjinn ungi sem slegið hefur í gegn með yngri- og varaliðum Tottenham. "Radek (Cerny) er mjög ánægður að hafa loksins fengið tækifæri í markinu en hann var búinn að vera frábær á æfingum," sagði Pekhart, en leikmenn Tottenham þurftu að smakka á því þegar Ramos tók við af Martin Jol. "Ramos kom inn í búningsklefann og sagði okkur að við værum feitir. Hann vildi um fram allt bæta líkamlegt ástand leikmanna og lét okkur æfa tvisvar á dag. Við vorum vigtaðir eftir hverja æfingu og mataræðið var tekið í gegn. Nú drekkum við bara vatn með sítrónu," sagði Tékkinn.
Enski boltinn Mest lesið „Það fyrsta sem sést er rassinn á mér“ Sport Tekur ekki við afsökunarbeiðninni og segir hann ljúga Fótbolti Rúnar: Ég hef aldrei farið á Þjóðhátíð Íslenski boltinn Jón Þór: „Ég er algjörlega orðlaus“ Íslenski boltinn Hljóðlátu mótmælin munu ekki fara fram hjá neinum Fótbolti Infantino svarar gagnrýnendum í langri færslu: „Heimurinn þarf ást, ekki hatur“ Fótbolti Endurkomur hjá kærustuparinu: „Þakklát og hamingjusöm“ Sport Samstarf við rússneskt veðmálafyrirtæki varð Pirlo að falli Fótbolti Björgvin Karl vann sitt þriðja brons á heimsleikunum Sport Barnabarn Idi Amin keppir á Samveldisleikunum: „Verð nýr konungur Skotlands“ Sport Fleiri fréttir Segir að Defoe hafi skrópað á æfingu í fyrsta stjórastarfinu Chiesa elskar Liverpool og vonast eftir „nýju upphafi“ Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Sjá meira