Dótturfélag Jarðborana semur um djúpborun í Þýskalandi 21. desember 2007 12:08 Frá undirskrift samningsins. Efri röð til hægri: Bent Einarsson, forstjóri Jarðborana, og Ásgeir Margeirsson, stjórnarformaður. Neðri röð talið frá hægri: Thor Növig, frkvstj. Hekla Energy, og Phil Hutchings, framkvæmdastjóri Exorka International.
Hekla Energy, nýstofnað dótturfélag Jarðborana í Þýskalandi, og þýska félagið Exorka hafa samið um samstarf um borframkvæmdir þar í landi þar sem leitað verður jarðhita. Fram kemur í tilkynningu frá Jarðborunum að samningur þar að lútandi hafi verið undirritaður í München í síðustu viku og er ætlunin að bora mjög djúpar jarðhitaholur í Suður-Þýskalandi sem verða sex talsins. Áætlað er að dýpt hverrar holu verði allt að 5.000 metrum og er það mesta dýpt sem íslenskt fyrirtæki hefur nokkru sinni borað. Búið er að flytja stærstan hluta af nýjum hátæknibor Heklu Energy á borsvæði Exorku en vinnu við tengingar og frágang verður lokið fyrir jól. Reiknað er með að sjálfar borframkvæmdirnar hefjist að fullu strax eftir áramót. Verðmæti samningsins er um 1,5 milljarðar króna sem hækkar í 3,0 milljarða króna, nýti Exorka ákvæði þess efnis að framlengja verkefnið um 6 holur til viðbótar. Hekla Energy mun bora fyrstu þrjár holurnar í Mauerstetten sem er u.þ.b. 100 km suðvestur af München en í Mauerstetten hefur Exorka í hyggju að reisa fyrsta raforkuver sitt. Áætlað er að þessum borframkvæmdum ljúki fyrir árslok 2008. Það er fyrst á um fimm kílómetra dýpu sem reiknað er með hita á bilinu 125-130 gráður, en Exorka mun nýta hann til að framleiða rafmagn með svonefndri Kalina-tækni. Þessi tækni felst í því að raforka er framleidd við kælingu á heitu vatni.
Mest lesið Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Himneskt ei meir Viðskipti innlent Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Viðskipti innlent Kaupa CCP aftur frá Kóreu Viðskipti innlent Gluggaþvottur og þakrennuhreinsun fyrir sumarið Samstarf Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Sjá meira