Fitch staðfestir lánshæfi Straums-Burðaráss 21. desember 2007 11:21 Björgólfur Thor, stjórnarformaður Straums-Burðaráss.
Fitch Ratings staðfesti í dag lánshæfiseinkun Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf. Langtímaeinkunn bankans er BBB- og eru langtímahorfur stöðugar. Skammtímaeinkunn fyrir félagið er F3, óháð einkunn, C/D og stuðningseinkunn 3. Í tilkynningu frá Straumi segir að það sé álit Fitch að „einkunnin endurspegli fjárhagslegan styrk Straums, öran vöxt tiltölulega stöðugra tekna, aukna landfræðilega dreifingu bæði eignasafns og tekna og þá staðreynd að áhættustýring og upplýsingagjöf hafi verið efld til muna að undanförnu." Þá er einkunnin sögð markast af því að tiltölulega lítil reynsla sé komin á starfsemi Straums í núverandi mynd, hlutabréfaeign bankans sé enn mikil, einstakir liðir vegi þungt í efnahagsreikningnum og óvissa sé um hvernig gangi að samþætta einingar á ólíkum mörkuðum. „Fitch tekur fram að samsetning rekstrareininga og áhættu hafi batnað en bætir við að það eigi eftir að koma fram í sterkari efnahagsreikningi og rekstrarafkomu. Haldi bankinn áfram að bæta sig að þessu leyti renni það stoðum undir að einkunn hans verði hækkuð; að sinni verði hins vegar fylgst með áhrifum hinna erfiðu aðstæðna á markaði á bankann." „Loks er því lýst yfir að lausafjárstaða Straums sé góð og að fjárhagslegur styrkur bankans veiti honum umtalsverðan sveigjanleika til að vaxa, eins og stefnt sé að," segir í tilkynningu frá Straumi.
Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira