64 íslensk mörk í fjórum löndum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. desember 2007 22:41 Ingimundur Ingimundarson skoraði tíu mörk fyrir Elverum í kvöld. Mynd/Pjetur
Fjölmargir íslenskir handboltamenn léku með sínum liðum víða í Evrópu í kvöld. Danmörk GOG kom sér í kvöld í annað sæti dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta eftir fjórtán marka sigur á TMS, 40-26. Snorri Steinn Guðjónsson skoraði tvö mörk fyrir GOG og Ásgeir Örn Hallgrímsson eitt. Þorri Gunnarsson skorað þrjú mörk fyrir TMS. FCK er þó enn á toppi deildarinnar eftir stórsigur á botnliði Skanderborg, 36-17. Arnór Atlason komst ekki á blað hjá FCK í kvöld. Þá vann Skjern lið Fredericia með minnsta mun, 30-29, á útivelli. Vignir Svavarsson var annar markahæstu leikmanna Skjern með sjö mörk en Hannes Jón Jónsson skoraði sex mörk fyrir Fredericia. Gísli Kristjánsson skoraði tvö mörk fyrir Fredericia og Fannar Þorbjörnsson eitt. Sturla Ásgeirsson fór mikinn með Århus GF er hann skoraði átta mörk fyrir liðið í sigurleik gegn Nordsjælland, 33-29. Mikil spenna er í toppbaráttunni í Danmörku en aðeins fimm stig skilja að efstu níu liðin. FCK er í efsta sæti með 20 stig, GOG í öðru með nítján, Århus í sjötta með sautján, Skjern í sjöunda með sextán og Fredericia í því áttunda með fimmtán stig. TMS er í næstneðsta sæti deildarinnar með þrjú stig. Frakkland Í Frakklandi vann USAM Nimes þriggja marka sigur á St. Raphael í Íslendingaslag, 26-23, en Bjarni Fritzson skoraði þrjú mörk fyrir síðarnefnda liðið. Ragnar Óskarsson lék ekki með Nimes vegna meiðsla. Nimes er nú í sjötta sæti deildarinnar með fjórtán stig en St. Raphael í því áttunda með tólf. Svíþjóð Í Svíþjóð tapaði HK Malmö enn einum leiknum, í þetta sinn fyrir Redbergslid, 26-18. Valdimar Þórsson skoraði þrjú mörk í leiknum, þar af eitt úr víti, og Guðlaugur Arnarsson var með tvö. Sävehof vann nauman sigur á Ystad á útivelli, 31-30. Hreiðar Guðmundsson stóð í marki Sävehof. Sävehof er í þriðja sæti deildarinnar með nítján stig, tveimur á eftir toppliðum Hammarby og Redbergslid. HK Malmö er í þriðja neðsta sæti deildarinnar með sjö stig. Noregur Þá fór einnig fram heil umferð í norsku úrvalsdeildinni í handbolta. Elverum vann fjögurra marka sigur á Bodö, 31-27. Íslendingar skoruðu nítján af 31 marki Elverum í leiknum. Ingimundur Ingimundarson fór á kostum í liði Elverum og skoraði tíu mörk í leiknum. Sigurður Ari Stefánsson skoraði sex mörk og Samúel Ívar Árnason þrjú. Kragerö tapaði enn og aftur í kvöld en liðið á enn eftir að vinna sinn fyrsta sigur í deildinni. Í kvöld tapaði liðið fyrir Runar, 34-25. Magnús Ísak Ásbergsson skoraði sjö mörk fyrir Kragerö í leiknum.
Handbolti Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Enski boltinn Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Körfubolti Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Enski boltinn Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Körfubolti Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Pissustaðurinn reyndist vera beint fyrir framan myndavélina Sport Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas Enski boltinn Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Sjá meira