„Baugur ekki að bjarga okkur“ 5. desember 2007 12:55
Jón Sigurðsson forstjóri FL Group var í hádegisviðtalinu á Stöð 2 rétt í þessu. Þar var hann meðal annars spurður hvort Baugur hefði komið fyrirtækinu til bjargar. „Baugur er ekki að koma til að bjarga okkur. Þetta er fyrst og fremst tækifæri fyrir FL Group og við vorum búnir að skoða marga möguleika að undanförnu og teljum þetta vera hagkvæmast fyrir alla hluthafa félagsins," sagði Jón við Sindra Sindrason í hádeginu. Jón vildi ekki meina að eitthvað hefði farið úrskeiðis hjá félaginu og sagði þvert á móti að félagið hefði verið að verjast ágætlega á erfiðum markaði. Hann sagði einnig að ákveðinn misskilningur hefði verið um FL Group að undanförnu og nefndi til dæmis að eigið fé félagsins hefði verið 115 milljarðar fyrir aðgerðir gærdagsins. Nú er það komið upp í 180 milljarða og vonar Jón að félagið styrkist og nái að sanna hvað í því búi. Jón var einnig spurður að því hvort félagið hefði farið of glannalega undanfarið. „Ég held ekki. Það má auðvitað alltaf vera vitur eftir á en ég tel að þær ákvarðanir sem hafa verið teknir hafi verið réttar á þeim tíma. En eftir á að hyggja hefðum við kannski átt að fara aðeins hægar yfir," sagð Jón. Hann sagði það ekki hafa verið í myndinni að taka félagið af markaði né að leysa það upp. Jón sagði einnig að félagið hefði aldrei verið öflugra og tækifærin væru mjög mikil. „Við erum nú með mikið og sterkt eignasafn og skýra framtíðarsýn. Við erum einnig að byggja fyrirtækið upp á alþjóðavettvangi og erum að sanna okkur á því sviði. Þetta er eitthvað sem við vonum að fjárfestar hafi áhuga á."
Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira