Eigandi Sonics sækir um flutning á liðinu 2. nóvember 2007 19:43 Bennett keypti Sonics fyrir 350 milljónir dollara fyrir ári síðan NordicPhotos/GettyImages
Clay Bennett, eigandi Seattle Supersonics í NBA deildinni, staðfesti í kvöld að hann ætlaði að óska eftir því við forráðamenn deildarinnar að liðið verði flutt frá Seattle eins fljótt og hægt er. Bennett keypti liðið fyrir ári síðan en nú um mánaðamótin rann út frestur sem hann setti til að hægt væri að semja um byggingu nýrrar hallar fyrir liðið í Seattle. Viðræður við ríkisstjórnina í Washington og borgaryfirvöld í Seattle gengu lítið og því hefur Bennett ákveðið að liðið verði flutt - ásamt kvennaliði Seattle Storm í WNBA. Seattle er með leigusamning við KeyArena höllina út árið 2010 sem það verður að efna, en búist er við að Bennett og félagar muni reyna að semja sig út úr honum. Hann hefur frest til 1. mars á næsta ári til að sækja um að liðið verði flutt og verður að gera það ef liðið á að spila utan Seattle á næstu leiktíð. Bennett segir að þrátt fyrir ítrekaða viðleitni sína sé einfaldlega ekki nægur stuðningur við liðið í Seattle og því verði það að fara annað. Bennett er frá Oklahoma City og ætlar sér að koma liðinu fyrir þar í framtíðinni. Borgin hýsti lið New Orleans Hornets með miklum ágætum eftir að fellibylurinn Katrín reið yfir á sínum tíma og síðan hefur mikið verið rætt um að borgin fái til sín NBA lið.
NBA Mest lesið Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti Liverpool fær höfnun frá Brighton Enski boltinn Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-0 | Garðabærinn með hreðjatak á Kópavogi Íslenski boltinn Brann náði í frábær úrslit ytra Fótbolti „Einn versti hálfleikur sem ég hef séð liðið spila“ Fótbolti Rúnar Alex í markinu og hélt hreinu Fótbolti Mikael kom inn af bekknum í slæmu tapi gegn Benfica Fótbolti Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið Íslenski boltinn Elías Rafn hélt hreinu og Midtjylland í kjörstöðu Fótbolti Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Enski boltinn Fleiri fréttir ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Sjá meira