Fá hálfsárseinkasöluleyfi í Bandaríkjunum 2. mars 2007 05:45
Actavis hefur fengið samþykki bandarísku matvæla- og lyfjastofnunarinnar til að markaðssetja meltingarfæralyfið Ranitidine mixtúru þar í landi. Í tilkynningu Actavis til Kauphallar Íslands um málið kemur fram að þar sem fyrirtækið sé fyrst til að sækja um markaðsleyfi á lyfinu, hafi það fengið 180 daga einkarétt á sölu þess. Lyfið er sagt munu fara í dreifingu á næstu vikum. Róbert Wessman, forstjóri Actavis, fagnar einkaréttinum og segir þetta í fyrsta sinn í sögu félagsins sem slíkur áfangi náist. Hann segir vonir standa til að lyfið verði á meðal þeirra söluhæstu í Bandaríkjunum á árinu. Ranitidine mixtúra er samheitalyf frumlyfsins Zantac Syrup frá GlaxoSmithKline og er þriðja lyfið sem Actavis markaðssetur í Bandaríkjunum á árinu. Actavis segir að í fyrra hafi sala lyfsins í Bandaríkjunum numið um 121 milljón Bandaríkjadala, eða sem nemur um átta milljörðum króna.
Mest lesið Rukkuð vegna þegar greiddra bílastæða og fá engin svör Neytendur „Ekki mistök“ að brauð með engu kostaði tvö þúsund krónur Neytendur Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Viðskipti innlent Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Viðskipti innlent Stærsti olíufundur Evrópu í áratug í Póllandi Viðskipti erlent Opnuðu loks Hygge eftir 245 daga bið Viðskipti innlent Svona verður hægt að horfa á enska boltann í vetur Neytendur HBO Max streymisveitan komin til Íslands Viðskipti innlent Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stærsti olíufundur Evrópu í áratug í Póllandi Hampiðjan kaupir ástralskan kaðlaframleiðanda Japanskir bílaframleiðendur í skýjunum eftir tollasamkomulag Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira