Industria hlýtur verðlaun fyrir bestu nýju lausnina fyrir sjónvarp um internetið 19. september 2007 15:11 Frá vinstri: Laurence Mackintosh útgefandi Global Telecoms Business, Stefán Baxter tæknistjóri Industria, Marcus Liassides framkvæmdastjóri Inuk og Alan Burkitt-Gray ritstjóri Global Telecoms Business MYND/Global Telecom Business
Industria hlaut í gær verðlaun frá tímaritinu Global Telecoms, fyrir bestu nýjungina á sviði sjónvarps yfir internet (IPTV) ásamt breskum samstarfsaðila sínum, Inuk Networks. Verðlaunin hlutu fyrirtækin fyrir ,,Freewire" en það er þjónusta sem er ætlað að veita öllum breskum háskólanemum aðgang að stafrænu sjónvarpi um internetið. Þjónustan hefur hlotið góðar viðtökur og er búist við að hún verði innan árs stærsta IPTV dreifingarnet Bretlands með allt að sex milljónir notenda. Jafnframt stefnir Inuk á að bjóða sömu þjónustu til háskólastúdenta í Kanada fyrir lok þessa árs. Freewire keyrir á Zignal, sem Industria þróaði, alhliða hugbúnaðarlausn fyrir dreifingu á gagnvirku margmiðlunar- og sjónvarpsefni um internetið. Meðal nýjunga sem ekki hafa sést áður í hugbúnaði af þessu tagi er möguleikinn á að taka við gagnvirkum sjónvarpsútsendingum beint í hemilistölvu, án þess að vera með sérstakan afruglara. Þá getur Zignal einnig dreift sjónvarpsefni í þriðju kynslóðar farsíma. Stefán Baxter, þróunarstjóri Industria og Marcus Liassides, framkvæmdastjóri Inuk Networks, veittu verðlaununum viðtöku fyrir hönd fyrirtækjanna við glæsilega verðlaunahátíð í Whitehall í London í gærkvöld. Viðstaddir hátíðina voru um 180 stjórnendur fjarskiptafyrirtækja um allan heim. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir Stefán að það sé ánægjulegt að taka við viðurkenningu á sama tíma og stórfyrirtæki á borð við Oracel, Alcatel-Lucent, Huawei Technologies sem eru stærstu birgjar á sínu sviði í fjarskiptageiranum. Þá hafi verðlauning opnað fyrirtækinu dyr inn í spennandi tækifæri í alþjóðlegum verkefnum við uppbyggingu rekstrarkerfa gagnvirkra sjónvarpsveitna, þar sem Zignal leikur aðalhlutverkið. Industria komst fyrr á þessu ári á topp-50 lista CNBC yfir framsæknustu fyrirtæki Evrópu. Þar var fyrirtækinu lýst þannig að þar færi „líklega sá aðili sem myndi móta þróun samruna stafrænnar tækni og sjónvarps í Evrópu." Meðal þeirra fyrirtækja sem komust á listann ásamt Industria má nefna Skype, Tiscali, Adidas og BMW. Áður hefur fyrirtækið hlotið verðlaun fyrir framúrskarandi lausnir á sínu sviði og má þar nefna Red Herring 100 Europe verðlaunin árið 2006, en verðlauning hlaut fyrirtækið fyrir hugbúnað fyrir breiðband sem stuðlar að samruna sjónvarps, síma og internetsins.
Mest lesið Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Samstarf GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Fleiri fréttir Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Sjá meira