Handbolti

Óvissa með þátttöku á EM

Guðjón Valur Sigurðsson.
Guðjón Valur Sigurðsson.

Guðjón Valur Sigurðsson fer í aðgerð í fyrramálið en hann fór úr axlarlið í leik með Gummersbach um helgina. Talið er að hann verði frá í rúma þrjá mánuði. Óvíst er því hvort hann geti tekið þátt með íslenska landsliðinu í Evrópumótinu í janúar á næsta ári.

Guðjón fór úr axlarlið á vinstri öxl samkvæmt heimasíðu Gummersbach en atvikið gerðist í leik gegn Balingen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×