Samið um viðskiptavakt 17. desember 2007 14:11
Glitnir og 365 hf hafa samið við Saga Capital Fjárfestingarbanka um að bankinn annist viðskiptavakt með hlutabréf félaganna fyrir eigin reikning Saga Capital. Í því felst að Saga Capital skuldbindur sig til að setja daglega fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf Glitnis og 365 hf og tryggja þannig seljanleika þeirra. Saga Capital vaktar nú þegar viðskipti með bréf SPRON, Marels og Icelandair Group. Viðskiptavaktir sem þessar efla viðskipti með viðkomandi hlutabréf og stórbæta þjónustu við hluthafa. Mikil virkni í viðskiptum með hlutabréf fyrirtækja eykur seljanleika þeirra og dregur þannig úr áhættu og viðskiptakostnaði fjárfesta. Að auki leiða mikil viðskipti til gegnsærri verðmyndunar og meiri veltu viðkomandi hlutabréfa. Í samningi Saga Capital við Glitni skuldbindur bankinn sig til að setja daglega fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf Glitnis að lágmarki tvær milljónir að nafnverði á verði sem Saga Capital ákveður í hvert skipti. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 0,8% og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3,0%. Hámarksfjárhæð heildarviðskipta dag hvern skal vera kr. 200 milljónir að markaðsvirði. Í samningi Saga Capital við 365 skuldbindur bankinn sig til að setja daglega fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf 365 að lágmarki ein milljón að nafnverði á verði sem Saga Capital ákveður í hvert skipti. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1,25% og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3,0%. Hámarksfjárhæð heildarviðskipta dag hvern skal vera kr. 100 milljónir að markaðsvirði.
Mest lesið Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Neytendur Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Viðskipti erlent Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Sjá meira