Icelandair hugleiðir einkaþotuflota í Mið-Evrópu Óli Kristján Ármannsson skrifar 24. október 2007 06:45 Sigþór Einarsson, frá Icelandair Group, Roman Vik, forstjóri Travel Service, og Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair, á fundi í Prag fyrir helgi, en þangað var boðið blaðamönnum, greinendum fjármálafyrirtækja, stjórnarmönnum Icelandair og fleirum til að kynna reksturinn. MYND/ÓKÁ „
Ekki er út í hött að hugsa sér 20 til 30 véla einkaþotuflota í Mið-Evrópu þegar fram í sækir,“ segir Sigþór Einarsson, framkvæmdastjóri þróunar og stefnumótunar, hjá Icelandair Group. Tékkneska flugfélagið Travel Service, sem er að 80 prósentum í eigu Icelandair Group, starfrækir þegar eina Cessna-einkaþotu fyrir níu farþega. Fram kom í máli Romans Vik, forstjóra Travel Service, á kynningarfundi Icelandair í Tékklandi fyrir helgi að vélin væri umsetin og hefði næg verkefni, sér í lagi frá Rússlandi. Sigþór segir þegar búið að leggja inn pöntun fyrir annarri vél. „Þetta er ört vaxandi markaður,“ segir hann og bætir við að stefnt sé á öran vöxt þessarar þjónustu. Travel Service er stærsta einkarekna flugfélag Tékklands með um 10 prósenta markaðshlutdeild á alþjóðaflugvellinum í Prag á eftir ríkisflugfélaginu. Þá á Travel Service og rekur lággjaldaflugfélagið Smart Wings. Farið var yfir horfur í rekstrinum á fundi Icelandair í Prag. Skrifað var undir kaupsamning á Travel Service í síðasta mánuði. Á móti Icelandair Group eiga í félaginu Roman Vik forstjóri og Lenka Vikova 10 prósent, en hin 10 prósentin eiga eigendur Unimex Group, sem er með margvíslegan verslana- og fyrirtækjarekstur í Tékklandi og víðar.
Mest lesið Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira