Óheppilegt að loka í heilan dag 4. desember 2007 16:58 Þórður Friðjónsson.
Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, segir að lögð sé áhersla á að stöðva viðskipti með bréf fyrirtækis í Kauphöllinni eins sjaldan og í eins stuttan tíma og mögulegt er. Viðskipti með bréf í FL Group voru stöðvuð í morgun og sagt að tilkynning frá félaginu væri væntanleg. Sú tilkynning barst hins vegar ekki fyrr en klukkan 16:45 eða við lokun markaða. „Venjan er nú sú að miða við að stöðvanir séu eins sjaldan og í eins skamman tíma og mögulegt er," segir Þórður í samtali við Vísi. „Við höfum miðað við að reyna að koma í veg fyrir að lokun sé lengur en í tvo tíma," segir hann en bætir því við að engin formleg séu mörk á þessu. „Það er matsatriði á hverjum tíma hvað er í þágu markaðarns og fjárfesta. „Í þessu tilviki ákváðum við að hinkra en tilkynningin dróst á langinn," segir Þórður en það er Kauphöllin sem tekur ákvörðun um að loka á viðskipti með bréf. Þórður segir óheppilegt að lokað sé í heilan dag, það eigi að heyra til algerra undantekningatilvika. „Ég man aðeins eftir einu tilviki um svona langa lokun síðan ég byrjaði hjá Kauphöllinni, en það var í tengslum við miklar eignatilfærslur á milli Eimskips, Straums-Burðaráss og fleiri fyrirtækja," segir Þórður að lokum og bætir því við að Kauphöllin leggi þunga áherslu á að lokanir á markaðinum séu sjaldgæfar og standi yfir í stuttan tíma í senn.
Mest lesið Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Neytendur Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Neytendur Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Viðskipti innlent Lengja opnun, gleðja starfsfólk og spara peninga Neytendur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Viðskipti innlent Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Viðskipti innlent Ekkert verður úr TikTok-banni með nýjum samningi Viðskipti erlent Hæstu stýrivextir í þrjátíu ár Viðskipti erlent Gréta María óvænt hætt hjá Prís Viðskipti innlent Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Sjá meira