Al Gore gestur hjá dótturfyrirtæki Landsbankans 4. desember 2007 11:33 Al Gore.
Al Gore, nóbelsverðlaunahafi og fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna var gestur á Orku- og umhverfisráðstefnu Merrion Capital, dótturfyrirtækis Landsbankans þann 1. desember síðastliðinn í Dublin á Írlandi. 400 gestir hlýddu á framsöguræðu varaforsetans sem bar yfirskriftina „Græn hugsun: Efnahagsstefna fyrir 21. öldina." „Þegar John Conroy, forstjóri Merrion, bauð Nóbelsverðlaunahafann velkominn sagði hann að Dublin væri heiður að heimsókn Gore, „sem væri áhrifamesti maður um mikilvægasta málefni sem mannkynið stæði frammi fyrir í dag - loftslagsbreytingar".", segir í tilkynningu frá Landsbankanum. „Gore sagði áheyrendum, írskum og alþjóðlegum fjárfestum og forstjórum stórra fyrirtækja, að það væri honum mikil hvatning hve umhverfismál væru ofarlega á baugi í alþjóðlegum markaðsviðskiptum," segir einnig. „Hann fagnaði einnig möguleikum á að versla með endurnýjanlega orkukvóta. Um leið og hann óskaði Írum til hamingju með einstaklega góðan árangur í efnahagsmálum á undanförnum tíu árum sagði Gore að „aukinni hagsæld fylgdi aukin siðferðisleg og pólitísk ábyrgð um að taka forystu í glímunni við loftslagsbreytingar."" Írland hefur einstakri stöðu að gegna að mati Gore en hann sagði að í ljósi árangurs Íra í viðskiptum gætu þeir gegnt lykilhlutverki á meðal iðnríkja við að að vekja athygli á umhverfisverndarmálum. „Það er skoðun Landsbankans að alþjóðlegum fyrirtækjum beri skylda til að taka markvissa afstöðu til mikilvægra félagslegra, siðfræðilegra og umhverfislegra mála. Þar á meðal er glíman við loftslagsbreytingar. Bankinn tekur þátt í mörgum verkefnum til að framfylgja þessari stefnu," segir einnig í tilkynningunni og bent á að bankaráð hafi lagt aukna áherslu á að fjárfestaí fyrirtækjum og verkefnum sem hvetja til sjálfbærrar nýtingar náttúrauðlinda. „Bankinn hyggst leggja enn frekar sitt af mörkum til að stuðla að þróun á sjálfbærri nýtingu orku og auðlinda með því að nýta íslenska sérþekkingu á þessu sviði."
Mest lesið Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Viðskipti erlent Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Viðskipti innlent Fengu ekki bætur þrátt fyrir óhreint herbergi Neytendur Wolt sendlar lögðu niður störf Viðskipti innlent Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Viðskipti innlent Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum Samstarf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Viðskipti innlent 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Samstarf Fleiri valkostir í Bónus með Salling Samstarf Fleiri fréttir Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Sjá meira