Heiðmar og félagar áfram í bikarnum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. nóvember 2007 08:52 Robertas Pauzuolis og Heiðmar Felixsson í leik með Burgdorf. Nordic Photos / Bongarts
Heiðmar Felixsson og félagar í Hannover-Burgdorf gerðu sér lítið fyrir og slógu út úrvalsdeildarliðið Wetzlar í þýsku bikarkeppninni í gær. Burgdorf náði fimm marka forystu seint í síðari hálfleik og sá munur hélst fram í leikhlé, 12-7. Wetzlar skoraði þá fimm mörk í röð, jafnaði leikinn og náði svo þriggja marka forystu þegar ellefu mínútur voru til leiksloka, 18-15. Heiðmar og félagar létu ekki setjast og minnkuðu muninn í eitt mark í stöðunni 19-18. Þá komu þrjú mörk í röð hjá Burgdorf og dugði það til að skapa tveggja marka sigur, 24-22. Heiðmar skoraði sex mörk í leiknum og Robertas Pauzuolis, fyrrum leikmaður Hauka, skoraði fjögur mörk. Burgdorf leikur í norðurriðli 1. deildarinnar í Þýskalandi, rétt eins og Empor Rostock sem tapaði fyrir Rhein-Neckar Löwen í sömu keppni í gær. Rostock var reyndar með fjögurra marka forystu í hálfleik, 17-14, og náði mest fimm marka forystu í síðari hálfleik. En þá bitu leikmenn Löwen í skjaldarrendur og innbyrtu að lokum tveggja marka sigur, 33-31. Elías Már Halldórsson átti fínan leik fyrir Rostock og skoraði fimm mörk í gær. En það var annað lið í 1. deildinni sem sló út úrvalsdeildarlið í gær þegar Düsseldorf vann sjö marka sigur á Lübbecke. Leikurinn var nokkuð jafn lengst af en leikmenn Düsseldorf stungu svo af undir lokin. Birkir Ívar Guðmundsson stóð í marki Lübbecke og Þórir Ólafsson náði ekki að komast á blað í leiknum. Að síðustu lagði Hamburg lið Grosswallstadt í eina úrvalsdeildarslag gærkvöldsins, 31-27. Þessi lið eru komin áfram í fjórðungsúrslit þýsku bikarkeppninnar: THW Kiel TSG Friesenheim HSG Nordhorn VfL Gummersbach Rhein-Neckar Löwen TSV Hannover-Burgdorf HSG Düsseldorf Hamburger SV
Mest lesið „Gríðarlega særandi að hlusta á þetta“ Sport Ísland - Króatía 5-0 | Íslensk einstefna á Laugardalsvelli Fótbolti Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Fótbolti Atlético yfir í 89 mínútur og raunir United-manna aukast Fótbolti Hákon og félagar máttu sín lítils þegar ensku meistararnir skiptu um gír Fótbolti Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Handbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Íslenski boltinn Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Handbolti Konurnar komu Íslandi upp um deild í Bakgarðshlaupum Sport Fleiri fréttir Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum Sjá meira