Fagfjárfestar telja aðstæður góðar í efnahagslífinu 27. nóvember 2007 12:19
75% íslenskra fagfjárfesta telja að aðstæður í efnahagslífinu séu góðar um þessar mundir. Á sama tíma telur þriðjungur fagfjárfesta að aðstæður í hagkerfinu muni versna innan sex mánaða. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Capacent Gallup gerði meðal 105 fagfjárfesta á tímabilinu 18. september til 11. október sl. Morgunkorn Glitnis fjallar um könnunina og þar segir að niðurstöðurnar beri vott af þeirri óvissu sem einkennir markaði þetta haustið. Þrátt fyrir að meirihluti fagfjárfesta sé ánægður með aðstæður í efnahagslífinu á því tímabili þegar könnunin var gerð eru fáir sem búast við að ástandið verði betra að hálfu ári liðnu. Þeir allra svartsýnustu eru einnig fáliðaðir á þessum óvissutímum en eingöngu 6% aðspurðra telja núverandi aðstæður í efnahagslífinu vera slæmar. Rétt rúmlega 21% telja að aðstæður verði betri í efnahagslífinu eftir hálft ár frá því að könnunin var gerð en helmingur aðspurðra telur að þær verði óbreyttar. Töluverð samstaða virðist ríkja um að gengi krónunnar muni lækka og gengi hlutabréfa hækka á næstu tólf mánuðum. Rúmlega 70% fagfjárfesta telja að krónan komi til með að veikjast á næstu tólf mánuðum og búast þeir við að veikingin nemi um það bil 6,5% að meðaltali. Þá búast 82% fagfjárfesta við að hlutabréf hækki á sama tímabili og að hækkunin nemi að meðaltali 12%.
Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira