Commerzbank orðaður við tvo banka 26. nóvember 2007 21:39 Höfuðstöðvar Commerzbank í Frankfurt. MYND/GEtty
Þýski bankinn Commerzbank, sem FL Group á rúmlega fjögurra prósenta hlut í, hefur verið orðaður við tvo banka, annan í Þýskalandi og hinn í Rússlandi. Sá fyrrnefndi nefnist Deutche Postbank og er stærsti viðskiptabanki Þýskalands ef tekið er mið af fjölda viðskiptavina. Í hálffimm fréttum Kaupþings er bent á að hlutabréf í Postbank hafi hækkað um nærri þriðjung frá 7. nóvember vegna vangaveltna að um að Deutsche Post muni selja rúman helmingshlut í fyrirtækinu. Þannig hefur Bloomberg-fréttaveitan eftir Martin Kohlhaussen, stjórnarformanni Commerzbank, að bankinn muni falast eftir Postbank verði hann boðinn til kaups þótt ekki komi til greina að borga fáranlegt verð fyrir. Sérfræðingar benda enn fremur á að Deutsche Bank gæti rennt hýru auga til Postbank og sömuleiðis erlendir bankar því þarna kunni að leynast síðasta tækifærið fyrir erlenda banka til að komast inn á þýska viðskiptabankamarkaðinn. Eigendur Commerzbank hafa einnig áhuga á að sækja fram í Rússlandi. Bankinn reyndi um daginn að eignast meirihluta í hinum rússneska Promsvyazbank en það fór út um þúfur þar sem mikið bar í milli kaupenda og seljenda. Bent er á í hálffimmfréttum að Commerzbank eigi rúmlega 15 prósenta hlut nú þegar í rússneska bankanum.
Mest lesið Pakkarnir séu langt frá því að vera sambærilegir Viðskipti innlent Vilja að Musk fái allt að 122 billjónir á næsta áratug Viðskipti erlent Síminn má dreifa efni Sýnar Viðskipti innlent Brutu lög við söluna á Íslandsbanka og greiða yfir 60 milljónir í sektir Viðskipti innlent Húrra opnar þriðju verslunina á höfuðborgarsvæðinu Viðskipti innlent Ellefu prósent þjóðarinnar eiga ísvél Neytendur Hryllingssögur og dæmi: „Slúbbertar halda heilu stofnunum í gíslingu“ Atvinnulíf Segir félaginu skylt að skipta sér af „sorgarvegferð“ Play Viðskipti innlent Seldu samheitalyf við hvítblæði og HIV fyrir hundruð milljóna Viðskipti innlent Hætta með spilakassa á Ölveri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vilja að Musk fái allt að 122 billjónir á næsta áratug Vara við „Lafufu“ Framkvæmdastjóri Nestlé látinn fara í kjölfar ástarsambands Frakkar þurfi mögulega að leita aðstoðar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins Risinn sem var of stór til að falla er fallinn Facebook gagnrýnt fyrir að leyfa gervigreind að reyna við börn Vilja ekkert með áfengi nágranna sinna hafa Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Kynntu nýja útgáfu ChatGPT: „Þetta er eins og að tala við sérfræðing“ Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Tíu prósenta tollur á færeyskar vörur Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Sjá meira